afstaða forsætisráðherra til lóðaframboðs og svæðisskipulags.
Forseti. Nýverið kom skýrt fram í svari hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma að Flokkur fólksins sættir sig ekki við að eitt sveitarfélag geti með neitunarvaldi stöðvað uppbyggingu annarra. Það er í takt við áherslur Flokks fólksins, yfirlýstar áherslur Flokks fólksins, ég endurtek, um aukið lóðaframboð og að brjóta nýtt land þegar þörf krefur. Í kjölfar fyrirspurnatímans ritaði hins vegar hv. þm. Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, grein í Morgunblaðið þar sem hann heldur því fram að núverandi kerfi standist tímans tönn, að hægt sé að byggja áfram innan óbreyttra vaxtarmarka og að tölur á blaði um tugi þúsunda íbúða innan núverandi marka sýni næga möguleika. En við vitum að fólk býr hvorki í skýrslum né skipulagstillögum og tölur á blaði hafa ekki orðið að heimilum og verða ekki nema ferlið breytist.
Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra, sem leiðtoga ríkisstjórnarinnar og formanns Samfylkingarinnar, er því: Hvar stendur hæstv. forsætisráðherra í þessu máli? Mun hún styðja fyrirliggjandi frumvarp hv. þm. Hildar Sverrisdóttur sem hefur það markmið að stórauka lóðaframboð og brjóta nýtt land með því að afnema neitunarvald á vaxtarmörkum sveitarfélaga? Eða tekur hæstv. forsætisráðherra undir nálgun hv. þm. Dags B. Eggertssonar um að halda áfram á grundvelli óbreyttra vaxtarmarka? Ef svo er, hvaða pólitísku og stjórnsýslulegu skref ætlar hæstv. forsætisráðherra að taka svo að sú afstaða skili sér í betra lóðaframboði og fleiri íbúðum fyrir ungt fólk og fjölskyldur á næstu árum?