157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

afstaða forsætisráðherra til lóðaframboðs og svæðisskipulags.

[15:04]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Nú eru auðvitað ákveðin lög í gildi um svæðisskipulag sem hafa ýmsa kosti. Þetta hefur verið til umræðu á sveitarfélagsstiginu og bara svo það sé sagt þá er þetta ákvörðun sem sveitarfélögin eiga að taka í sameiningu. Það er ekki bara eitt sveitarfélag sem þar er undir, þetta eru sveitarfélög sem eru hér á öllu höfuðborgarsvæðinu. Það liggur auðvitað fyrir að þegar núverandi svæðisskipulag var gert þá voru ákveðnar forsendur undir um fólksfjölgun. Við vitum vel í þessu landi að það hafa orðið miklar breytingar þegar kemur að þeim spám. Það hefur eiginlega hvergi í þeim löndum sem við horfum á í kringum okkur orðið jafn mikil fólksfjölgun hér á skömmum tíma og þess vegna finnst mér ekkert óeðlilegt að það sé rætt hvort það eigi að gera einhvers konar breytingar þegar nýjar forsendur koma inn í myndina. Þannig að ég ætla ekkert að setja mig upp á móti einu eða öðru í þessu samhengi. Við getum ekkert útilokað að það verði gerðar breytingar á svæðisskipulaginu en það þarf þá að setjast niður og ákveða í sameiningu meðal þessara sveitarfélaga hvort það eigi að gera það og það er ekki mitt að ákveða það í þessum stól Alþingis.

Ég vil hins vegar segja að ég er almennt á þeirri skoðun að það þurfi að byggja meira. Það liggur alveg fyrir að það hefur verið ákveðinn skortur en sérstaklega á ákveðnum tegundum íbúðarhúsnæðis hér á höfuðborgarsvæðinu. Hvort sem það er gert innan vaxtarmarka eða utan þá liggur alveg fyrir að það þarf að brjóta nýtt land enda er fjöldinn allur af svæðum innan vaxtarmarkanna þar sem þarf líka að brjóta nýtt land og á enn þá eftir að gera þannig að við höfum enn þá svigrúm innan vaxtarmarka. En síðan þurfum við bara að sjá til hvort það er nóg og hlusta á sveitarfélögin.