aðgerðir stjórnvalda vegna uppsagna í þjóðfélaginu og vaxtaákvörðun Seðlabankans.
Virðulegi forseti. Við þekkjum það og höfum séð það í tengslum við fjárlögin að staðan er býsna góð í ríkisfjármálum eftir að fengist hafði verulegur tekjuauki þegar málin voru nánar skoðuð. Við þekkjum að það er öflugt atvinnulíf á Íslandi sem býr til mikið af störfum og við höfum blessunarlega búið við það mjög lengi. Á síðustu vikum hafa hins vegar hrannast upp ákveðin óveðursský eða í það minnsta áskoranir. Annar ársfjórðungur var að mati Hagstofunnar með samdrátt, fall Play, uppsagnir allra starfsmanna, eða nær allra, á Bakka við Húsavík og síðan, væntanlega vegna vaxandi eða þrálátrar verðbólgu og hárra vaxta, höfum við séð fleiri og fleiri missa atvinnuna. Atvinnuleysi er að hækka. Við höfum líka séð að raunverð á íbúðum fer lækkandi sem getur verið jákvætt en það getur líka verið ógnvekjandi fyrir þá sem eru hugsanlega að fara að kaupa.
Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvaða væntingar hún hefur til vaxtaákvörðunar Seðlabankans núna á miðvikudaginn. Og til hvaða mótvægisaðgerða ætlar ríkisstjórnin að grípa, til að mynda vegna stöðunnar á Bakka við Húsavík, sem er grafalvarleg í ekki stærra samfélagi? Eða þá vegna áhrifa á ferðaþjónustuna þegar við erum að fara inn í veturinn? Kemur til greina til að mynda að fara í markaðsstarf til að tryggja að það verði ekki svona mikið fall í þennan tíma, á þessum erfiða tíma þegar atvinnuleysi fer vaxandi og við virðumst þurfa að búa við áframhaldandi háa verðbólgu og háa vexti? Þetta eru áhyggjur sem fólkið í landinu hefur, þetta venjulega fólk. Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvers ætlar ríkisstjórnin að grípa til?