aðgerðir stjórnvalda vegna uppsagna í þjóðfélaginu og vaxtaákvörðun Seðlabankans.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég vil byrja á því að taka fram að auðvitað hefur maður fyrst og fremst áhyggjur af því starfsfólki sem missti vinnuna hjá Play um daginn. Þar eru það kerfin, okkar sjálfvirku kerfi, þetta velferðarkerfi sem við höfum byggt upp, sem skipta miklu máli, bæði Ábyrgðasjóður launa og Atvinnuleysistryggingasjóður. Við höfum verið í ákveðnu ójafnvægi í hagkerfinu. Það eru margir mælikvarðar þar sem við getum litið til þess, eins og bara sú staða sem við höfum verið í í talsvert langan tíma að það er mjög hátt raungengi hér á landi sem veldur fjöldanum öllum af útflutningsgreinum ákveðnum vandkvæðum. Ég hef sjálf áhyggjur af því og það er engin töfralausn á því hvernig við leysum hátt raungengi. Ríkisstjórnin er hins vegar að gera það sem hún hefur svigrúm til að gera, sem er að ná tökum á ríkisfjármálunum. Við erum bara býsna nálægt því að skila hallalausum fjárlögum og höfum nú talað um það í umræðu um fjárlög að við erum móttækileg fyrir öllum tillögum sem koma til með að bæta afkomuna, ekki gera hana verri.
Við höfum með virkum hætti tekið þátt í að reyna að styðja við þá stöðu sem upp er komin á Bakka. Það hefur verið starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins sem hefur unnið þétt með hagsmunaaðilum þarna á svæðinu, í stöðugu sambandi við Norðurþing og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Það er verið að leggja lokahönd á skýrslu sem verður skilað þar sem er verið að skoða málið á breiðum grunni, m.a. í samhengi við uppbyggingu orkukerfisins. Ég get greint frá því að þessi hópur hefur verið t.d. í beinu samstarfi og samtali við sex áhugasama fjárfesta sem hafa áhuga á atvinnuuppbyggingu í Norðurþingi, því að við þurfum líka að hugsa áfram til lengri tíma um breiða atvinnusköpun á svæðinu. Það er auðvitað miður að þessi staða sé komin upp hjá þessu staka félagi en við þurfum líka að vera með fleiri egg í þessari körfu. Ég hef miklar væntingar til þessarar vinnu en eins og ég segi: Ríkið er að gera sitt með ríkisfjármálunum. Svo getum við farið aðeins yfir fleiri mál í næsta svari.