157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna uppsagna í þjóðfélaginu og vaxtaákvörðun Seðlabankans.

[15:14]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir það. Hallalaus fjárlög — mér fannst reyndar og finnst enn að ríkisstjórnin hafi svolítið gefist upp fyrir því en þau hafa vissulega boðað efnahagsaðgerðir og húsnæðispakka við 2. umræðu fjárlaga, væntanlega vegna þess að annaðhvort voru þau ekki búin að undirbúa það við fjárlögin eða þá að þau eru að svara þeirri gagnrýni. Mér finnst fjárlögin endurspegla of lítið aðhald og of hröð útgjöld og það er verið að senda röng skilaboð vegna væntinga með því að hækka krónutölur um það sem Hagstofan spáir um verðbólgu næsta árs.

Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er bæði erfitt að eiga við raungengi og ná niður verðbólgu. Ein leið til þess er að ná samtali við alla aðila og þess vegna langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra, þar sem til er vettvangur sem heitir þjóðhagsráð þar sem allir aðilar vinnumarkaðarins, Seðlabankinn og sveitarfélögin sitja: Hversu oft hefur forsætisráðherra boðað til slíks fundar, í því ráði, til að reyna að horfa á stóru myndina, hvernig hægt er að ná niður verðbólgunni og vöxtunum? Eins hversu oft það hefur verið gert frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum.