157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna uppsagna í þjóðfélaginu og vaxtaákvörðun Seðlabankans.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við sögðum strax í haust að ef við þyrftum að gera meira hraðar þá myndum við gera meira hraðar. Og það er það sem við erum að gera. Við skiluðum fjárlögum núna í haust með 15 milljarða halla — 15 milljarða, einn fimm. Við erum býsna nálægt því að ná hreinni afkomu en við erum að leggja lokahönd á húsnæðispakka og efnahagspakka vegna þess að við erum tilbúin að bregðast við og við erum sannarlega tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir. Það er annars vegar talað um of lítið aðhald og svo er talað um eftirgjöf í tekjum í krónutölunum. Þetta þarf að fara saman og það liggur alveg fyrir að ekkert sem þarf að gera verður auðvelt.

Varðandi þjóðhagsráð þá funduðum við fyrir viku síðan þar sem við vorum einmitt að fara yfir stöðuna í efnahagsmálunum. Við funduðum líka í vor og það er á dagskrá að boða til fundar aftur núna í nóvember. Mér skilst að þetta sé bara í takt við það sem áður hefur verið, svona tveir til þrír fundir á ári. Ég er reyndar, af því að ég sé að hv. þingmaður er að gretta sig, með þá tölu að 26 fundir hafi verið haldnir síðan 2016 eða 2017 og það er nú svona í kringum tveir til þrír fundir á ári. Þannig að við erum í ágætu meðaltali. (Forseti hringir.) En betur má ef duga skal og það er sjálfsagt að funda oftar ef fólk telur það hjálpa.