157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

uppsögn ferliverkasamninga lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

[15:24]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið þau fyrirmæli að segja upp ferliverkasamningum við sérfræðilækna. Það er ljóst að þjónustan mun dragast verulega saman ef ekki finnst lausn á málinu. Staðan á sjúkrahúsinu er því grafalvarleg. Um er ræða 13 sérgreinalækna í hjarta-, krabbameins-, kvensjúkdóma-, meltingarfæra- og lyflækningum, þjónusta sem íbúar á Norðurlandi og víðar hafa hingað til getað treyst á og er okkur nauðsynleg. Þetta veldur eðlilega miklum áhyggjum, ekki aðeins meðal starfsfólks og sjúklinga heldur einnig heilsugæslulækna á upptökusvæði SAk og lækna á Landspítala sem sjá ekki fram á að geta tekið við öllum þeim sjúklingum sem munu þá leita suður ef þjónustan fæst ekki lengur á Akureyri. Þetta er því, má segja, kerfislægt vandamál, ekki staðbundið.

Ferliverkasamningarnir hafa verið við lýði í áratugi, samningar sem voru boðnir læknum af heilbrigðisstofnunum og samþykktir af stjórnvöldum. Þeir hafa verið lykillinn í því að tryggja sérfræðiþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins og hafa reynst aðilum vel og ekki síður sjúklingum sem hafa þurft á þjónustunni að halda. En staðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri er krefjandi. Mannekla er töluverð. Sífellt fleiri afleysingalæknar og læknar í hlutastöðum sem ekki eru búsettir á svæðinu sinna störfum sem gerir m.a. eftirfylgni með þjónustu flóknari. Ef ferliverkasamningar falla úr gildi eða læknar minnka við sig vinnu er hætta á að SAk nái ekki lengur að sinna hlutverki sínu sem varasjúkrahús. Þá gæti þurft að loka göngudeild og senda sjúklinga suður til rannsókna og meðferðar. Þjónustan á SAk hefur verið byggð upp af frábæru starfsfólki í áratugi og ef hluti hennar hverfur nú mun taka mörg ár að endurreisa hana. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að sérgreinar styðja hver aðra. Ef ein hverfur veikist önnur.(Forseti hringir.)

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Var ráðherra í samráði við stjórn Sjúkrahússins á Akureyri áður en þessi ákvörðun var tekin? Er ráðuneytið virkt í því (Forseti hringir.) að finna lausn á málinu með stjórnendum SAk? Síðast en ekki síst: Ætlar ráðherra að tryggja að sérfræðiþjónusta (Forseti hringir.) haldist á Akureyri svo landsbyggðarfólk haldi áfram jöfnum rétti til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð?