uppsögn ferliverkasamninga lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Norðaust. fyrir spurninguna sem hófst á þeirri setningu að sjúkrahúsið hefði fengið fyrirmæli um að segja upp ferliverkasamningi. Það er ekki rétt að mínu mati. Þetta mál hófst í fyrra með bréfi frá fjármála- og efnahagsráðuneyti þegar hv. 10. þm. Suðurk. var fjármálaráðherra. Þar var bent á svokallaða gerviverktöku og kosti og galla við verktakasamninga, en að gerviverktöku ætti að uppræta því að hún gæti sætt endurákvörðun skattyfirvalda. Heilbrigðisráðuneytið fylgdi þessu erindi eftir með bréfi í mars, sem fór til allra forstjóra heilbrigðisstofnana þar sem var verið að árétta þennan mun á þessum samningum, og síðan í maí og þar stendur orðrétt, með leyfi forseta: Forstjórar fari yfir verksamninga sína við heilbrigðisstarfsmenn með ákveðin sjónarmið í huga.
Þarna er sem sagt forstjórum uppálagt að fara yfir samninga og sjá hvort um sé að ræða gerviverktöku. Það er rætt að það eigi auðvitað helst ekki að hafa verktakasamninga, heldur reyna að manna með föstum mannskap, en að það sé hægt í undantekningartilvikum.
Ég var ekki í neinu samráði, af því að um það var spurt, við forstjóra áður en þetta mál var tekið upp. Það er ekki búið að segja upp þessum samningum en forstjóri vinnur að lausnum. Síðan hefur verið spurt hvort ráðuneytið sé með í ráðum og þá kom ákveðin fyrirspurn frá forstjóra í liðinni viku.