uppsögn ferliverkasamninga lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Frú forseti. Á fundi okkar þingmanna í kjördæmaviku með stjórn Sjúkrahússins á Akureyri kom reyndar annað fram í þeirra máli varðandi ferli þessa máls og ætla ég ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. ráðherra, það er af og frá. Hins vegar snýst þetta ekki kannski um samningana sjálfa, þetta snýst um þjónustuna sem er í boði í heimabyggð, þjónustu sem íbúar hafa hingað til getað treyst á, þjónustu sem er afar mikilvægt að varasjúkrahús landsins geti sinnt. Ef áfram heldur sem horfir munum við sjá á eftir mikilli þekkingu hverfa úr heimabyggð, sem er bara gríðarlegt áfall fyrir svæðið.
Ég vil bara endurtaka orð mín: Ætlar hæstv. ráðherra að tryggja að sérfræðiþjónustan sem nú er til staðar á svæðinu haldist svo að fólkið geti átt jafnan rétt á þessari heilbrigðisþjónustu í heimabyggð sem fyrir er og er tilefni til að staldra við og fresta umræddum í rauninni uppsögnum þangað til önnur lausn finnst? Ég veit að það er búið að fresta þeim til 1. nóvember en þarf ekki (Forseti hringir.) hreinlega að fresta þeim til lengri tíma til að við getum fundið ásættanlega lausn til þess að veita þá þjónustu sem fólkið þarf á að halda?