uppsögn ferliverkasamninga lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Frú forseti. Ég er sammála þingmanninum um að þetta er afar mikilvæg þjónusta og hana þarf að tryggja með öllum ráðum. Eins og ég nefndi áðan þá vinnur forstjóri að lausnum og er í lófa lagið að fresta þessum aðgerðum. Sú sem hér stendur mun ekki koma að þessu máli. Ég hef sagt mig frá því vegna skyldleika við einn af þeim aðilum sem þarna starfa þannig að það yrði þá annar ráðherra. Ég hef auðvitað metið hæfi mitt skref fyrir skref í þessu máli en nú er komið ákveðið erindi frá forstjóra. Það kom í liðinni viku og þá hafði ég þegar lagt drög að því. Þannig að sú sem hér stendur mun ekki koma að lausn þessa máls en vonandi annar í hennar stað.