157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

breytingar á lögum um Sjúkratryggingar Íslands.

[15:32]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Í samráðsgátt liggur nú fyrir frumvarp um breytingu á lögum um sjúkratryggingar. Frumvarpið felur í sér að Sjúkratryggingum Íslands verði gert kleift að ákveða hvernig gjaldskrá lítur út og takmarka magn og þjónustu og heildarendurgreiðslur til hvers þjónustuveitanda, auk þess að skylda lækna til að vera með rekstur sinn í formi einkahlutafélags þrátt fyrir að nær allir sjálfstætt starfandi læknar séu með sinn rekstur í samlagsfélagi. Í frumvarpinu er einnig undið ofan af rammasamningum sem sérgreinalæknar gerðu við ríkið fyrir tveimur árum síðan. Þeirri sátt sem þá náðist á nú að kasta fyrir róða. Læknar hafa eðlilega tekið þessum fregnum illa og hefur formaður Læknafélags Reykjavíkur sagt ríkið ganga á bak orða sinna og að læknar yrðu tilneyddir til að ljúka samstarfi sínu við Sjúkratryggingar. Afleiðingarnar yrðu m.a. þær að sú greiðslumiðlun sem læknar hafa sinnt myndi heyra sögunni til. Í stað þess að sjúklingurinn borgi einungis sinn hluta hjá lækninum mun sjúklingurinn þurfa að borga allan reikninginn og verður að sækja endurgreiðsluna sérstaklega til Sjúkratrygginga.

Því vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort þessar áhyggjur formanns Læknafélagsins hafi komið til skoðunar við gerð frumvarpsins eða hvort hún hafi verið að heyra af þeim fyrst í dag. Þá vil ég líka spyrja hæstv. ráðherra hvort hún deili þessum áhyggjum formannsins.