breytingar á lögum um Sjúkratryggingar Íslands.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurninguna. Um er að ræða frumvarpsdrög sem eru í samráðsgátt og bara svo að það sé sagt strax í byrjun þá er ekki ætlunin að kollvarpa neinu er varðar samninga Sjúkratrygginga og sérgreinalækna. Þarna er annars vegar verið að bregðast við ábendingum og athugasemdum sem komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar í sumar sem leið og þar voru gerðar fjölmargar athugasemdir við nefndan samning og samningsmarkmið. Ég bara hvet þingmanninn til að lesa þá umfjöllun. Þessi drög snúa ekki eingöngu að sérgreinalæknum heldur hafa mótast í reynslu af fjölmörgum samningum sem Sjúkratryggingar gera. Drögin eru í samráðsgátt næstu vikurnar og ég hef hvatt formann Læknafélags Reykjavíkur sem og aðra haghafa að setja þar fram athugasemdir og auðvitað verða þær skoðaðar.
Þarna er kannski fyrst og fremst um þrennt að ræða. Það er rekstrarformið og það er auðvitað líka stefnt að því að gera meira samninga við starfsheildir heldur en einyrkja og það er meira að segja orðað í þessum samningi. Með því að gera kröfur um rekstrarform kemur aukið gegnsæi um rekstur samningsaðila en það er alveg hægt að gera undantekningar um rekstur sem er t.d. ekki í ágóðaskyni. Síðan er þarna ákvæði um það þegar samningsleysi er, eins og var núna síðast í nokkur ár, og lítill hvati til að semja. Ég kannski fæ að svara þessu betur í seinna svari. (Forseti hringir.) Og í þriðja lagi eru atriði sem lúta að eftirliti Sjúkratrygginga.