157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

breytingar á lögum um Sjúkratryggingar Íslands.

[15:36]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin og hlakka til að heyra það sem hún á þá kannski eftir að svara. Hér var nefnt að það hefðu komið athugasemdir frá Ríkisendurskoðun og ég geri ráð fyrir að það hafi þá frekar snúið að því hverjar nákvæmlega skyldur sjúkratrygginga eru. Ég sé t.d. ekki af hverju það ætti endilega að skipta máli hvers konar félög eru rekin af hálfu lækna nema þá að það standi mögulega til að gera útboð eða fara í einhvers konar útboð á þessari þjónustu. Þá velti ég fyrir mér hvort það sé framtíðarsýn hæstv. ráðherra að hér verði til einhverjar skipulagsheildir eða jafnvel félög af sérgreinalæknum sem muni þá bjóða sérstaklega í, og hvort það séu þá samningar sem mögulega verði til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu.