157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Það er rétt sem hann tekur fram að tekjuaukningin er 3,3 milljarðar. Það kemur hins vegar fram og kom fram í framsöguræðu minni að það hafa þegar verið gerðar verðlagsbreytingar á bæði olíugjaldi og bensíngjaldi. Þetta er þá sambærileg hækkun fyrir kílómetragjaldið ef kílómetragjaldið tekur gildi, þ.e. annaðhvort fellur olíugjaldið niður, muni Alþingi samþykkja þessi lög, og þá hverfur það út og þessi tekjustofn kemur í staðinn eða, verði þessi lög ekki samþykkt, að olíugjaldið heldur sér og tekjuaukinn komi þá þaðan.