kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég bið hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson innilega afsökunar frá dýpstu hjartarótum að hafa ekki svarað spurningunni, en ein mínúta er skammur tími eins og hann veit. Ég held að það sé full ástæða til þess og beini því til efnahags- og viðskiptanefndar að fara vandlega yfir það hvaða áhrif þessi breyting mun hafa á flutningskostnað. Við erum þó sammála um, enda þingmaðurinn kurteisari heldur en ég og svaraði minni spurningu, að það er eðlilegt að greitt sé fyrir notkun á vegakerfinu. Ég vil hins vegar vísa til föðurhúsanna þeirri fullyrðingu hv. þingmanns að það sé verið að hækka ferðakostnað úti á landi. Þvert á móti að þá sýnir greinargerðin með frumvarpinu, sem og þeir útreikningar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur lagt fram, að svo er ekki. (Gripið fram í: Á fyrsta ári. )