kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir alla vega einhverja nálgun að svari en mér finnst enn þá óljóst hver hin raunverulega aukna skilvirkni er. Frá því að fyrst var byrjað að ræða öðruvísi gjaldtöku til að mæta þessari tækniþróun, hvort sem það væri með veggjöldum, kílómetragjaldi eða öðru, þá stóð alltaf til að það yrði einhver einföldun í því og önnur gjöld myndu falla í burtu. Nú falla bara dísil- og bensíngjöld en öll önnur gjöld halda sér áfram þannig að það er ekki verið að auka skilvirknina þar. Hvernig á almenningur að geta treyst því að stjórnvöld og aðrir nýti sér ekki þá það að bensín- og dísilgjöldin séu farin og hækki þá álögur aftur í gegnum eldsneytisverðið þannig að það verði farið að rukka þá kílómetragjaldið og bensín- og dísilgjöldin komi óljóst einhvern veginn öðruvísi aftur inn í þetta?