kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hálft svar og ætla, verandi sá liðsmaður sem ég er, að gefa honum tækifæri til að halda áfram að svara og hlaða ekki á hann fleiri spurningum, en ítreka að á endanum snýst þetta um eftirfarandi: Telur hv. þingmaður eðlilegt að eigendur eldri bifreiða greiði meira fyrir notkun sína á vegakerfinu en eigendur yngri bifreiða sem er raunverulega staðan sem við stöndum frammi fyrir í dag? Þessi þróun hefur verið mun hraðari en við gerðum ráð fyrir. Það er auðvitað vel. Við viljum auðvitað mjög gjarnan draga úr eldsneytisnotkun af ýmsum ástæðum en í grunninn er þetta kjarnaspurningin.