kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég játa að það er kannski ofsagt að segja að rafbílarnir hefðu verið hverfandi hluti. En hitt er annað mál, það hefur hægst mjög á fjölgun rafbíla. Það liggur alveg fyrir. Þetta er þróun sem á líka við erlendis, fjölgun rafbíla í nýkeyptum bílum, fjárfestingu í bifreiðum, það hefur hægt á henni. Hvað finnst mér um frumvarpið almennt? Ég ætla að leyfa mér að leyfa þinginu aðeins að fjalla um þetta og heyra fleiri sjónarmið í þessum efnum. Það sem ég hef um þetta að segja á þessum tímapunkti er að það slær mig þannig, og það gerði það líka á síðasta kjörtímabili þegar menn voru að velta þessu fyrir sér í þáverandi ríkisstjórn, að menn væru að fara aðeins of geyst í stórkostlega kerfisbreytingu vegna þess að við höfum alveg ágætiskerfi sem virkar þegar kemur að bílunum sem nýta jarðefnaeldsneyti. Ég ætla að leyfa mér bara að fá að sjá einmitt þinglega meðferð á þessu.
Þeir borga sem nota. Já, að sjálfsögðu. Ég nefndi það einmitt í ræðu minni hérna: Hverjir njóta ekki vegasamgangna? Það gera allir, líka þeir sem ekki eiga bíl. Þeir eru kannski jafnvel háðari vegasamgöngum og bílasamgöngum heldur en þeir sem eiga bíla. Það þarf að keyra mat ofan í þá og þar fram eftir götunum. Út á það gekk auðvitað afnám markaðra tekjustofna að vissu leyti, þetta rennur auðvitað allt í ríkissjóð og ríkissjóður fjármagnar vegina. Þannig er nú það. En ef hv. þingmaður er að spyrja mig kannski sérstaklega um veggjöld, þá held ég að þau komi til greina í sumum tilvikum en alls ekki öllum. Það er oft dýrara kerfi heldur en þessi fjármögnun sem við höfum á vegasamgöngum til lengri tíma. Það vildi ég sagt hafa.