kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú að byrja á að segja að hæstv. fjármálaráðherra — hafandi þekkt til hans nokkuð lengi, setið með honum fyrir nokkrum árum til að mynda nokkra fundi og farið yfir útfærslur á því sem hér er til umræðu, þ.e. uppbyggingu vegakerfisins og hvernig við getum unnið betur að því og hafandi setið með honum marga fundi þar sem hann kom sem fræðimaður á nefndarfundi hjá okkur við hin ýmsu tilefni — er miklu betri fræðimaður en pólitíkus. Ég held að hann ætti að huga að því að snúa sér að því. Ég held að honum hljóti sem fræðimanni að líða ansi illa með þá útfærslu sem hann er að bjóða þingi og þjóð upp á núna. Það er rugl sem er að eiga sér stað þegar kemur að gjaldtöku af ökutækjum landsmanna. Við höfum séð gegndarlausar skattahækkanir á bifreiðaeigendur og á umferð á undanförnum árum. Það má nefna kolefnisskatta. Það má nefna kílómetragjöld sem voru lögð á rafmagnsbíla og tvinnbíla. Það var í sjálfu sér ráðstöfun sem var gerð til þess að reyna að jafna eitthvað gjaldtöku eða þátt þeirra sem keyra á þessum bílum og það var ekkert óeðlilegt. En við sjáum síðan breytingar og hækkun á vörugjöldum. Við sjáum boðaða 7,5 milljarða hækkun á vörugjöldum núna sem er óútfærð. Ég er búinn að heyra í fulltrúum nokkurra bifreiðaumboða af þessu tilefni. Þarna hafa menn bara gríðarlega miklar áhyggjur, búnir að panta alla bílana fyrir löngu síðan fyrir næsta ár, sjá fyrir sér verulegan samdrátt í sölu nýrra bíla og hvaða afleiðingar hefur það fyrir þjóðarbúið? Það var ekki rétt sem kom fram áðan að við værum orðið með svo nýlegan flota í bílum. Það kom nú bara út frétt núna síðast á dögunum um það að bílafloti okkar landsmanna er að eldast meira. Hann hefur þótt gamall en hann er að eldast. Meðalaldur bíla á Íslandi er orðinn yfir 18 ár. Það yrði mikill hagur fyrir þjóðarbúið ef við gætum stigið alvarleg skref í því að bæta úr því. Kerfið sem við erum búin að byggja upp held ég að sé dýrt; mikið eftirlit, mikil skriffinnska. Ég held að það sé hægt að gera þetta með miklu einfaldari hætti. Það skilur enginn neitt í þessu. Þetta er orðið það flókinn frumskógur af gjöldum að það er ekki hægt að ætlast til þess að almenningur geri sér neina grein fyrir því hvar þetta liggur.
Það hafa verið nefndar tölur um 80 milljarða sem þeir sem kaupa og keyra bíla eru að borga í ríkissjóð á ári og það er gefið í skyn að það ætti allt að fara til samgönguframkvæmda. Það verður auðvitað líka að taka tillit til þess hvað umferðin kostar okkur á öðrum vettvangi ef menn ætla að fara út í svona útreikninga vegna þess að auðvitað kostar umferðin okkur gríðarlega mikið til að mynda í heilbrigðismálum. Slysamestu gatnamót landsins eru við Miklubraut og Kringlumýrarbraut, ljósastýrð gatnamót. Ljósastýrð gatnamót á höfuðborgarsvæðinu eru slysamestu gatnamót landsins. Bara með því að vera ekki með svona afturhaldssinna eins og hafa stýrt borginni undanfarin ár og hafa heimilað hér einhver mislæg gatnamót á nokkrum stöðum með tilheyrandi auknu og bættu umferðarflæði, þá myndi það borga sig upp á mjög skömmum tíma þjóðhagslega vegna þess að slysin kosta okkur alveg stórkostlegar upphæðir. Það verður auðvitað að taka allt með í reikninginn, löggæsluna í kringum umferðina, ef menn ætla að fara út í það hvað umferðin á að borga ef það á að vera þannig.
Hver getur svarað því í dag hvað þetta þýðir allt fyrir venjuleg heimili? Hver getur svarað því hvað þetta þýðir fyrir fólkið á landsbyggðinni sem þarf jafnvel að keyra oft til höfuðborgarsvæðisins? Hæstv. fjármálaráðherra vísaði því til nefndarinnar áðan að kanna það hvernig þetta kæmi út með flutningskostnað. Hið augljósa, þetta mun hækka flutningskostnað og aðföng á landsbyggðinni. Þetta eru landsbyggðarskattar enn og aftur. Þetta er allt of flókið og við sjáum vanreifaðar greinargerðir. Þetta er alveg sama og við upplifðum í veiðigjöldunum, gjörsamlega vanreifað áhrifamat. Við sjáum þetta í búvörulögunum sem eru núna í samráðsgátt, algerlega vanreifað áhrifamat. Það er auðvitað gríðarlega alvarlegt, virðulegur forseti, þegar þetta er orðið með þessum hætti. Svo er verið að boða reyndar stofnun innviðafélags, hæstv. innviðaráðherra er að tala um að það eigi að stofna innviðafélag um einhver göng úti á landi. Algerlega vonlaus hugmynd að mínu mati eins og hún er hugsuð í útfærslu. Hún á að vera um Sundabrautina líka þannig að þarna eru viðbótargjaldtökur að koma inn en ekki er tekið til þess í lækkun gjalda neins staðar á móti, og mun aldrei ganga upp auðvitað að einhver göng úti á landi verði borguð af umferðinni, dýrar framkvæmdir þar sem umferð er tiltölulega lítil. Þetta er byggðamál, þetta er allt öðruvísi mál, verður aldrei borgað af því. Það þarf að hugsa þetta á miklu stærri skala.
Í samgöngusáttmálanum er einnig talað um gjaldtöku. Það er hluti af fjármögnun á samgöngusáttmálanum en pólitíkin forðast að ræða það. Hvað veit fólk um það hvert stefnir í þeirri gjaldtöku? Það er bara ekkert um þetta rætt. Fyrir utan það að ef menn ætla að fara í svona gjaldtökuleiðir er best að fara í þær strax meðan á framkvæmdunum stendur vegna þess að þá ertu kominn með fjármagnsflæði inn í framkvæmdirnar á meðan þær standa yfir og það lækkar reikninginn stórkostlega. Það er mjög dýrt að byggja göng og fjármagna þær framkvæmdir í þrjú eða þrjú og hálft ár og hefja síðan gjaldtöku því að þú ert með svo mikinn fjármagnskostnað á framkvæmdatímanum. Það munar alveg stórkostlega. Þetta lét ég allt reikna út 2017 þegar ég var í ráðuneytinu.
Það þarf að endurskoða þetta, virðulegur forseti. Það þarf að hugsa þetta allt upp á nýtt. Það þarf að hugsa nýja nálgun í samgöngumálum vegna þess að við erum með allt niður um okkur þegar kemur að vegagerð, viðhaldi vega og uppbyggingu þessara mikilvægu innviða í landinu. Öflugra atvinnulíf úti á landi, laxeldi núna sem er að eflast stórkostlega og á vonandi eftir að eflast enn meira, kallar á enn betri samgöngur, sem og öll uppbygging atvinnulífs. Þetta er það hagkvæmasta sem við getum farið í.
Hvernig eigum við þá að nálgast þetta? Það hefur legið fyrir tillaga okkar í Sjálfstæðisflokknum í mörg ár, tillaga sem ég ræddi, virðulegur forseti, á sínum tíma nokkrum sinnum, átti fundi með hæstv. fjármálaráðherra. Hann sagði á þeim tíma, svo notuð séu hans eigin orð, að hann hefði ekki séð betri hugmynd. Meira að segja var komið svo langt að hann var farinn að hjálpa með að búa til glærukynningar um þetta mál. Þá var hann sérfræðingur. Þá var hann hagfræðingurinn sem ég var að tala við, sem ég tel að hann sé miklu betri, og alveg frábær, heldur en í pólitíkinni. Hann missti kannski af því, hæstv. ráðherra, áðan þegar ég var að hvetja til þess að hann myndi bara snúa sér þangað aftur vegna þess að þar höfum við virkilega not fyrir hans skoðanir og sjónarmið.
Það er ekkert verið að finna upp hjólið hér. Þetta hafa aðrar þjóðir gert allt í kringum okkur úti um allt og allir eru vanir því að borga í gegnum einhver gjaldhlið uppbyggingu vegakerfisins. Kosturinn við það er sá að þegar við erum orðin þetta mikið ferðamannaland eins og raun ber vitni í dag þá borga ferðamennirnir svo stóran hluta af uppbyggingunni, sem er eðlilegt. Þegar við byggðum Hvalfjarðargöngin þá var það nákvæmlega með þessum hætti sem við gerðum það. Þegar við hættum að rukka í Hvalfjarðargöngin 2018 voru það upp undir 40% sem einskiptisnotendur greiddu í tekjumódelið. Einskiptisnotendur eru að uppistöðu erlendir ferðamenn. Þá var þeim að fjölga og við erum með sambærilegar tölur og voru á þeim tíma. Þetta var vaxandi mjög þarna á árunum 2016, 2017, 2018 með fjölgun ferðamanna, þetta hlutfall. Þeir sem fóru oft um greiddu minna; módel sem gekk upp. Þannig vorum við að vinna í þessu 2017. Þannig lögðum við þetta til og var niðurstaða samgönguáætlunar 2019 að fara einmitt þessa leið. Við reiknuðum þetta út 2017. Með því að taka til að mynda Suðurlandsveginn frá Kambarótum, tvöfalda hann, ekki þetta 2+1 sem þar var gert, með hringtorgum við Hveragerði og Selfoss, jafnvel einum þar á leiðinni, með brúnni yfir Ölfusá og austur fyrir Þjórsá, tvöföldun alla leið — 140 kr. Það jafngildir svona 230 kr. framreiknað til dagsins í dag.
Mjólkurkýrnar í þessu fyrirkomulagi yrðu auðvitað stofnbrautirnar inn og út af höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna gerðum við ráð fyrir því á sínum tíma í okkar pælingum að það módel myndi borga fyrir stofnásana í gegnum höfuðborgarsvæðið, þ.e. Reykjanesbrautina niður að væntanlegri Sundabraut og síðan Miklubrautina vestur úr. Það var reiknað með því að framlag kæmi af þessari gjaldtöku, gjaldtakan yrði að vera jöfn þannig að hún kæmi nokkuð jafnt niður á landsmönnum, þ.e. það yrði ekki bara rukkað á stofnleiðum út af höfuðborgarsvæðinu sem þó myndu auðvitað færa langmest inn í þetta tekjumódel, væru algerar mjólkurkýr í því, en þú yrðir að fara líka í rukkanir í göngum og einstaka völdum vegarköflum úti á landi. Innviðafélag sem sæi um þetta sem fengi þetta vegakerfi sem í þetta yrði lagt í sinn reikning væri mjög stöndugt félag. Það væri með mjög góða fjármögnunarmöguleika á góðum kjörum vegna þess að eignir þess eru gríðarlegar. Þá getum við í raun farið að gera miklu meiri áætlanir til lengri tíma. Við getum boðið út miklu stærri verk, ekki verið alltaf í þessum rándýra bútasaumi sem uppbygging vegakerfisins er á Íslandi. Hún er allt of dýr. Ég man eftir því að verkfræðingur hjá Ístaki sagði mér, þegar var verið að bjóða út þriðja áfangann á veginum milli Hveragerðis og Selfoss, að ef annar og þriðji áfangi hefðu verið boðnir út saman hefðum við getað sparað okkur svona 700 milljónir á deginum í dag. Hér situr fólk inni sem væri alveg tilbúið að eyða því í eitthvað annað og það væri betur komið einhvers staðar annars staðar í kerfinu okkar.
Þetta myndi að þessu leyti leysa þessa framtíðarsýn og leysa þessi mál að mínu mati. Það er hægt að skuldbinda svona félag langt inn í framtíðina á þessu tekjumódeli sem við þetta myndast en það er líka bráðnauðsynlegt samhliða þessu, sem alltaf hefur verið hluti af okkar tillögum, að horfa til þess að lækka gjöld á almenning í landinu á móti. Ég er að láta reikna það út fyrir mig núna hvað við þyrftum að lækka vörugjöldin á það sem ég vil kalla venjulega bílinn, venjulega fjölskyldubílinn, sem eru kannski bílar sem kosta frá 5 og upp í 8 eða 9 milljónir. Ef við gætum lækkað vörugjöldin á slíka bíla um 1 milljón og ef við segjum að veggjaldið í dag yrði 200 kr. og einhver þarf að fara oft um þá er hann kannski að borga 120.000–150.000 á ári í þessi gjöld. En á móti kostar bíllinn þetta mikið minna sem mun strax skila sér inn í verðlagningu á notuðum bílum. Og hvað myndi þetta þá hafa í för með sér líka? Jú, við myndum endurnýja bílaflotann miklu fyrr. Við værum með miklu meira af nýrri bílum sem eru eyðslugrennri, öruggari, sem kosta samfélagið miklu minna og er bullandi hagkvæmni í að gera. Þannig að ég vil, virðulegur forseti, bara beina því til hæstv. fjármálaráðherra að við stöldrum við, að við höldum ekki áfram þessu rugli sem er í gangi hérna, setjumst niður, búum til einfalt módel byggt á þessu sem ég hef verið að fara hér yfir og hefjum gjaldtöku á grundvelli þess módels helst strax á næsta ári. Ég held að það sé alveg raunhæft. Það er öll tækni til. Þetta eru ekki gjaldhlið eins og var við Hvalfjarðargöngin þar sem þú stoppar í einhverjum bás og borgar. Þetta er allt lesið af bílnúmerum. Þetta einfaldar alla nálgun í þessum málum og myndi leysa þetta fyrir okkur. (Forseti hringir.) Hættum þessum gjaldafrumskógi sem er í dag og förum að fara einhverjar skynsamlegar leiðir.