157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:38]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við erum hér með kunnuglegan félaga til umræðu í dag í þinginu. Það er frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki. Þetta hefur nú verið rætt hér í þessum þingsal og í nefndum þingsins alla vega tvisvar og er þá að koma hingað í þriðja skipti, svolítið breytt frá því að upphaflega frumvarpið var lagt fram af síðustu ríkisstjórn. Ég er í grunninn fylgjandi því að taka upp nýtt kerfi. Það er öllum ljóst að tekjur af umferð hafa dregist verulega saman með tilkomu rafmagnsbíla og þær tekjur sem ríkissjóður hefur haft í gegnum tíðina af ökutækjum og eldsneyti hafa dregist verulega saman. Með þessu frumvarpi sem hér er lagt fram er verið að reyna að koma tekjunum upp í 1,7% af vergri landsframleiðslu sem hefur verið markmið stjórnvalda í töluverðan tíma.

Það væri svolítið sérstakt fyrir þann sem hér stendur að standa hér og tala mjög gegn kerfisbreytingunni sem slíkri enda studdi ég hana á sínum tíma þegar hún kom fram hjá síðustu ríkisstjórn. Ég er í grunninn sammála breytingunni á kerfinu eins og ég sagði áðan. Það eru hins vegar breytingar sem hafa átt sér stað á þessu frumvarpi sem ég get illa sætt mig við. Þetta eru breytingar sem við ræddum töluvert í efnahags- og viðskiptanefnd á síðasta þingi þegar þetta frumvarp var til umræðu þar. Ég kom fram með mínar áherslur og mína sýn þar inni í nefndinni en því miður var ekki horft á þær þá og þær eru heldur ekki hér inni og snúa að byggðavinkli þessa frumvarps. Ég, virðulegur forseti, verð bara að játa að eins og frumvarpið var lagt fram af síðustu ríkisstjórn þá sneri þetta, og gagnrýni þess sem hér stendur og fleiri, að áhyggjum af hækkuðum flutningskostnaði til og frá landsbyggðinni. Þá var gripið til þess ráðs að lækka tengivagnagjaldið, að tengivagnarnir myndu greiða 70% af gjaldinu. Með þeirri ákvörðun var frumvarpið orðið hlutlaust gagnvart þeim aðilum, þ.e. það var ekki kostnaðarauki á flutningsfyrirtæki. Það þýðir að ef frumvarpið væri þannig í dag og ef frumvarpið hefði farið þannig í gegn á sínum tíma þá hefðum við minni áhyggjur, eða litlar, af því að þetta frumvarp sem slíkt myndi hækka vöruverð á landsbyggðinni og ekki síður hækka álögur á þau fyrirtæki á landsbyggðinni sem eru að flytja sína vöru frá sínum heimahögum og hér að höfuðborgarsvæðinu eða til Keflavíkur til útflutnings. Ég hlakka til að eiga áframhaldandi samtal um þetta í efnahags- og viðskiptanefnd og ég mun halda þessum sjónarmiðum þar mjög á lofti og vona svo sannarlega að meiri hluti nefndarinnar sjái nú ljósið í þessu og breyti þessu.

Ég hef áhyggjur af hvert við erum að stefna í þessu öllu og það þarf að standa vörð um þetta. Með því að gera þetta eins og lagt er til í þessu frumvarpi, setja afsláttinn niður í 60% á fyrsta ári, svo 80 og síðan 100, er alveg ljóst að þetta mun hækka kostnað fyrir okkur sem búum úti á landi. Það er alveg augljóst. Ég trúi því ekki að það sé einhvern veginn inntakið sem menn ætla að fara með út úr þessu vegna þess að það hafa verið margar mjög jákvæðar breytingar gerðar á þessu frumvarpi. Nefni ég t.d. þær varðandi bændur og dráttarvélarnar sem eru nú komnar inn með undanþágu sem var ekki síðast. Það er jákvætt. Það var sömuleiðis byggðavinkill sem ég fagna að hafi verið lagaður. En eftir stendur þetta. Ég velti því svolítið fyrir mér hvert menn eru að fara. Þetta eru ekki stóru upphæðirnar í þessu frumvarpi.

Við höfum séð núna hvert frumvarpið og hverja tillöguna á fætur annarri sem er einhvern veginn að höggva í landsbyggðina. Ég ætla nú bara að byrja á því að nefna það frumvarp sem við vorum síðast að ræða hér á síðasta þingi sem var frumvarp um veiðigjöld. Við sjáum frumvarp um fækkun sýslumanna þar sem á að afleggja sýslumenn á landsbyggðinni og færa í einn. Heilbrigðisfulltrúarnir — og horfi ég nú á hv. þm. Sigurjón Þórðarson, þar sem á sömuleiðis að fara að fækka þeim úti á landi. (SigurjÞ: Slátrarinn.) Slátrarinn, hárrétt hjá hv. þingmanni. Við erum að horfa á frumvarp um framhaldsskóla þar sem á að taka skólameistara framhaldsskólanna og, svo ég noti nú orð hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, slátra þeim. Vinnueftirlitið, og nú kemur þetta frumvarp sem á að hækka álögur á landsbyggðina með hærra vöruverði og álögur á fyrirtæki með því að það verði dýrara fyrir þau að senda vörur frá sér. Þetta er ekki falleg mynd sem er að teiknast upp gagnvart okkur sem búum úti á landi. Frumvarpið svona uppsett get ég ekki samþykkt. Ég mun ekki samþykkja frumvarpið án þess að þessu verði breytt eða þetta lagað þó að ég, eins og ég sagði hér áðan, sé sammála hugmyndafræðinni á bak við það. Þessi breyting frá því að þetta var lagt fram hér af síðustu ríkisstjórn og breytingarnar á því eins og þær eru núna gera það að verkum að byggðahjartað í mér getur ekki með nokkru móti samþykkt slíkt.

Það er alveg rétt, eins og hefur komið fram í umræðunni, að við þurfum að byggja upp vegakerfið okkar. Við þurfum að hafa fjármagn til að byggja upp vegakerfið okkar og innviðaskuldin er orðin stór. Það eru miklar og stórar framkvæmdir sem við þurfum að fara í í vegakerfinu. Við þurfum að sinna viðhaldi og við þurfum að sinna vetrarþjónustu og allt kostar þetta fjármagn. Því verðum við einhvern veginn að finna leiðir til að ná í fjármagn, ég er alveg sammála því.

Af því að umræðan hér í ræðum á undan mér var komin svolítið í innviðagjöld og annað þá langar mig aðeins að taka umræðuna þangað örstutt. Þó að það sé kannski ekki beint tengt þessu máli þá er það það nú samt. Ég hef oft velt því fyrir mér og finnst það í raun og veru svolítið skondið að við erum búin að velta því fyrir okkur hér í þessum þingsal og víðar hvaða leiðir er hægt að fara til þess að fjármagna vegakerfið okkar. Sú leið sem oftast er nefnd er þessi færeyska leið, færeyska módelið sem sé svo frábært og ég get alveg tekið undir það að sú leið er alveg virkilega vel útfærð. Ég fór til Færeyja fyrir nokkrum árum með atvinnuveganefnd, við skoðuðum jarðgöng og hittum forsvarsmenn fyrirtækisins sem heldur utan um það. Þá kom í ljós að þetta færeyska módel er þannig til komið að Færeyingar fóru til Íslands og skoðuðu Hvalfjarðargöngin og ákváðu að þarna væri komið módel sem gæti hentað þeim, tóku upp Hvalfjarðarmódelið og nú erum við hér á Íslandi að velta því fyrir okkur hvort við getum farið færeysku leiðina sem er í raun og veru íslensk. Ég held að þetta sé mjög áhugaverð leið að fara. Við eigum klárlega að fara að fikra okkur í þessar áttir. Við erum með stofnvegina út frá höfuðborgarsvæðinu sem eru gríðarlega mikið eknir og mikið af ferðamönnum sem eru í raun og veru fara þessar stofnleiðir út. Eins varðandi göngin þá held ég að það sé mjög skynsamlegt að reyna að koma upp einhverju kerfi þar til þess að gera það í raun og veru sjálfbærara og þá þurfum við ekki að setja sama fjármagn inn í kerfið og við erum að gera í dag til þess að ná að viðhalda þessari viðhaldsþörf, hvort sem það er vetrarþjónustan eða ég tala nú ekki um allar nýframkvæmdir. Eitt útilokar ekki annað, virðulegur forseti. Ég held að við getum alveg farið og það sé samhugur í því í þinginu að skoða einhverja svona leið.

Ég bara hlakka til að taka enn einn snúning á þessu máli í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég veit að mín afstaða í þessum málum kemur engum þar neitt á óvart. Hún hefur legið fyrir alveg skýr. Ég vona að nefndin nái betri sátt en við náðum síðast um þessar breytingar þannig að við séum ekki enn og aftur að leggja auknar álögur á íbúa landsbyggðarinnar. Ef eitthvað er þá þurfum við frekar að horfa á þetta úr hinni áttinni, hvernig við getum gert það meira aðlaðandi og meira spennandi fyrir fólk og fyrirtæki að setjast að úti á landi. Það gerum við ekki með því að setja á það auknar álögur og aukna skattheimtu.