157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:59]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég nú byrja á að þakka fyrir ágæta ræðu. Þetta frumvarp er, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, hagfellt fyrir landsbyggðina, ákveðna þætti, en hann kemur fram með málefnalegar athugasemdir sem mun eflaust verða brugðist við í efnahags- og viðskiptanefnd. Það er líka rétt að frumvarpið hefur batnað frá því að það var rætt hér fyrr. Þetta mun eflaust koma landsbyggðinni til góða. Ég heyri það, nú er ég er nýkominn úr kjördæmavikuferð um Norðausturkjördæmi, að það ríkir ákveðin bjartsýni um að ríkisstjórnin muni láta verkin tala og þetta er kannski einn liður í því; að bæta vegakerfið og innviði í hinum dreifðu byggðum, að við fáum hér viðspyrnu sem verður til að bæta samgöngur á landinu öllu. Mér finnst það vera mjög mikilvægt. Ég tel að við þurfum einfaldlega að horfast í augu við þá innviðaskuld sem við erum í og að það þurfi að greiða hana til að halda landinu í byggð.

Vissulega eru þarna ákveðnir þættir sem þarf að athuga, það sem snýr að framleiðslufyrirtækjum mögulega, að treysta grunn þeirra þannig að þau flytjist ekki úr héraði og á höfuðborgarsvæðið. Á hinn bóginn þá sjáum við líka að sum fyrirtæki hafa verið að færa sig frá því að halda uppi byrðum úti á landsbyggðinni, það kostar líka, í stað þess að vera að trilla með vörur. Þá vil ég nefna hér olíu frá örfáum birgðastöðvum í stað þess að halda olíubirgðum í sjávarbyggðunum. Þetta frumvarp mun mögulega hvetja til þess að menn efli á ný strandveiðar. Það er alveg ljóst að þetta getur verkað í báðar áttir.