kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Enn og aftur þá var svo sem ekki bein spurning en hins vegar er ég sammála hv. þingmanni, sem ég er ekki oft en það er gleðilegt að við skyldum ná saman í þessu máli hér í dag.
Hv. þingmaður talar um flutningsjöfnunarsjóð. Ég er ekki alveg 100% viss en ef það er eins og mig minnir þá greiðir flutningsjöfnunarsjóður einungis flutning út á land en ekki frá fyrirtækjunum sem eru að flytja afurðir af landsbyggðinni suður eða í aðrar áttir. Fyrir utan það að flutningsjöfnunarsjóður hefur náttúrlega verið vanfjármagnaður árum og áratugum saman. Engu að síður tek ég bara undir með hv. þingmanni að við erum í þessari baráttu alla daga, alla vega við sem erum héðan af landsbyggðinni og erum kjörin til þess að standa vörð um okkar kjördæmi, okkar fyrirtæki og okkar fólk, okkar svæði. Það er það sem við erum að gera hér í dag, eða ég alla vega er að gera í dag. Ég er að benda á þá staðreynd hvað þetta frumvarp mun að óbreyttu þýða fyrir landsbyggðina, þýða fyrir fyrirtækin á landsbyggðinni og íbúa sem þar búa. Ég skora á meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að taka þetta mál til endurskoðunar svo að við getum klárað þetta mál þannig að okkur sé öllum sómi af í nefndinni og á Alþingi.