kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir gott andsvar. Það mun ekki skorta áhuga eða kraft frá okkur þingmönnum Framsóknarflokksins sem hafa talað í þessari umræðu þess efnis þegar kemur að þessari breytingu sem hér er fyrirhuguð, að fylgja því eftir að eldsneytisverð lækki í samræmi við það þegar skattlagningin verði tekin af hverjum lítra, að það verði fylgst vel með því. Ég held að það sé mjög mikilvægt.
Í spurningu hæstv. fjármálaráðherra er verið að velta því fyrir sér varðandi bílaflotann. Nú vill það þannig til að ég keyri stundum á milli landshluta og mér hefur sýnst yfirhöfuð að sá bílafloti sem beri hér þungann og hitann af öllum þeim flutningum á milli landshluta séu fyrst og fremst nýlegir og mjög öflugir og góðir bílar og væntanlega mun sparneytnari en þeir voru á sínum tíma. Ég tel það vera æskilega leið í öllu til að reyna að efla atvinnulíf og treysta byggð á landinu, að við beitum skattalegum ívilnunum, undanþágum til þess að efla og treysta byggðina nú og sömuleiðis til að reyna að halda niðri vöruverði. Það er mjög mikilvægur þáttur og hefur áhrif á líf allra í landinu. Ég þakka því hæstv. ráðherra fyrir góða spurningu og sömuleiðis gott innlegg í lokin á sínu andsvari sem var mjög jákvætt og ég vonast til þess að það komist til skila til meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.