kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu í málinu og langar að taka aðeins sérhæfðan vinkil á málið, hvernig þessar breytingar blasa við atvinnulífinu. Hægt væri að taka alls konar vöruflutninga eða annað sem krefst þess að nota bíla sem þetta kílómetragjald leggst á. En ég ætla hér að taka bílaleigur sem dæmi og skoða aðeins hvernig þetta frumvarp kemur við þær. Ég held að okkur þingmönnum og ráðherrum væri oft hollt að hlusta á atvinnulífið því að það er atvinnulífið sem skapar þau verðmæti sem samfélagið okkar rekur sig á. Það eru ekki margir flokkar hér á þingi, alla vega enginn í stjórnarflokkunum, sem tala fyrir hönd atvinnulífsins þannig að það er, held ég, nauðsynlegt að stækka kökuna í stað þess að þrengja að og minnka kökuna stöðugt.
Bílaleigur vaxa samhliða aukinni ferðaþjónustu og því fleiri ferðamenn því fleiri bílar á vegunum. Það má geta þess að beinar skatttekjur eru um 15 milljarðar sem bílaleigur skila inn til ríkissjóðs á ári hverju. Vegakerfið er eins og æðar og flutningar um það þá eins og blóðið í þeim og eru flutningar um land allt algerlega grunnforsenda fyrir hagvexti í landinu, að fólk komist á milli staða.
Það er ákveðinn raunveruleiki í því þegar atvinnulífið tjáir sig um fyrirhugaðar breytingar. Það hafa komið fram athugasemdir frá atvinnulífinu og bílaleigum sem sýna það svart á hvítu að frumvarpið eins og það liggur fyrir núna er ófullburða og illframkvæmanlegt og ekki sanngjarnt. Það mun skapa aukið flækjustig og meiri kostnað, en það á í raun að koma til móts við þessa þætti.
Virðulegi forseti. Bílaleigur vara við því að frumvarpið sé bæði ósveigjanlegt og dýrt í innleiðingu. Þetta kallar á innviði, ný kerfi, nýtt starfsfólk án þess að tryggja betri og réttlátari gjaldtöku. Það leggur of mikla skriffinnsku á leigurnar, fjölda skráninga og upplýsingaskylda skriffinnsku. Þær þurfa að halda utan um daglegar upplýsingar um akstursmæla, skráningargjöld og greiðslur og bera jafnframt áfram ábyrgð á innheimtu fyrir hönd ríkisins. Það er einfaldlega byrði á grein sem vinnur nú þegar í mikilli samkeppni og þjónar hundruðum þúsunda ferðamanna á ári. Samkvæmt frumvarpinu þarf að uppfæra alla leigusamninga, þetta blasir bara við bílaleigunum, og tryggja rafrænt samþykki leigutaka fyrir kílómetragjaldi. Ef það er ekki gert getur bílaleigan setið uppi með gjaldið sjálft. Og þótt ég sé að ræða hér bílaleigur þá á þetta auðvitað við um marga aðra flutninga. Þetta þýðir að þúsundir samninga þurfa að breytast og hvert samningsferli þarf að tryggja með lagalegri ábyrgð. Slíkt er ekki bara pappírsvinna, það krefst kerfisbreytinga, tæknilausna og mikils kostnaðar. Þetta er kostnaður sem leigurnar þurfa að fara út í og er hluti af því sem menn tala um í flækjustigi og kostnaði. Bílaleigur sinna nú þegar fjölmörgum skyldum fyrir hönd hins opinbera. Þær innheimta bílastæðagjöld, þjóðgarðsgjöld, gagnagjöld og aðstoða við upplýsingagjöf vegna hraðasekta. Nú á að bæta kílómetragjaldinu við og gera bílaleigurnar að innheimtuaðilum ríkissjóðs. Það er hvorki eðlilegt né sanngjarnt. Það er ekki sjálfbær leið til skattheimtu. Ef ríkið ætlar að fela einkafyrirtækjum innheimtu sína þá verður það að tryggja þeim raunhæfa aðlögun og endurgjald fyrir vinnuna. Ef þetta frumvarp verður í einhverri mynd að lögum, þá þarf ákveðin aðlögun að geta átt sér stað.
Bílaleigur hafa selt þjónustu sína 12–18 mánuði fram í tímann og þær geta ekki hækkað verð aftur í tímann. Það þýðir það að ef kílómetragjaldið tekur gildi án nægs aðdraganda, þá munu bílaleigurnar sitja uppi með þennan kostnað sjálfar. Það verður ekki skattur á akstur heldur nýr og óbeinn skattur á ferðaþjónustuna á Íslandi vegna þess að bílaleigurnar eru náttúrlega risastór partur af ferðaþjónustunni á Íslandi og þetta er kannski fyrsta skrefið í því að skattleggja ferðaþjónustuna.
Í frumvarpinu segir að bílaleigur geti borið ábyrgð á greiðslu kílómetragjalds ef leigutaki greiðir ekki. En hvað þýðir það í reynd? Ferðamenn sem leigja bíl í viku skila honum og fljúga heim. Á bílaleigan þá að elta þá um heim allan með kröfu á þá vegna gjaldsins sem á að greiða í ríkissjóð? Það er bæði óraunhæft og óframkvæmanlegt. Hér sjáum við að verið er að leggja ákveðnar kvaðir og flækjustig á einkafyrirtæki. Til að tryggja greiðslu þyrftu bílaleigurnar að vera með tryggingaframlag fyrir fram frá viðskiptavinum eða bíða þar til skil á kílómetragjaldi hefur verið reiknað og það greitt. Það myndi þýða flöskuháls og biðraðir og það er ekki það sem ég held að við sem ferðamannaland viljum fyrir ferðamennina okkar. Það vinnur gegn allri þeirri stefnu sem ferðaþjónustan hefur haft, að gera upplifun ferðamanna einfaldari, hraðari og stafræna.
Í frumvarpinu er kveðið á um reglulega skráningu á stöðu akstursmælis. Það hljómar einfalt á blaði en fyrir ákveðna stórnotendur, sem eru þá bílaleigurnar, er það í raun flókið, tímafrekt og kostnaðarsamt. Það á að vera þægilegt í framkvæmd, ekki handavinna sem leggur byrðar á og tefur starfsfólk. Annars getur það þýtt aukinn starfsmannakostnað og jafnvel sektir ef mistök verða við skráningu. Bílaleigur benda á að í allt að 10–15% tilvika geta mæligildi verið röng eða ómarktæk einfaldlega vegna þess að það eru mannleg mistök eða verið að keyra bíla á milli verkstæða eða útibúa. Þetta eru eðlileg frávik sem gætu orðið refsiatriði ef ekki er hugsað út í þennan þátt.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ríkisskattstjóri setji áætlun um meðalakstur. Það getur þýtt að bílaleigur þurfi að greiða háar fjárhæðir fyrir fram án þess að raunakstur sé þekktur. Slíkt er ósveigjanlegt, óraunhæft og getur skapað bakreikninga eða endurgreiðslu síðar, skapað stöðugt uppgjörsflækjustig sem engum þjónar. Þetta er raunveruleikinn sem blasir við þessari atvinnugrein. Einnig er gert ráð fyrir svokölluðu daggjaldi sem valkosti fyrir bílaleigur. Það er ágætishugmynd í grunninn en framkvæmdin skiptir öllu. Ef daggjald er of hátt, t.d. þannig að það hækki leigudaginn um 15–20%, þá getur það haft veruleg áhrif á eftirspurn og samkeppnishæfni Íslands. Ferðamenn geta einfaldlega valið að ferðast minna eða halda sig nær höfuðborginni. Það þýðir að landsbyggðin tapar og við skerðum þá dreifingu ferðamanna sem við höfum reynt að efla. Þetta er ákveðið lykilatriði að það er ólíklegra, þegar við erum komin með gjaldið inn, að ferðamenn séu að keyra lengra út á land, taka bílaleigubíl í Reykjavík og halda sig síðan bara við suðvesturhornið. Þetta er, ég vil ekki nota orðið aðför að litlum ferðaþjónustufyrirtækjum sem eru lengra í burtu, alla vega högg fyrir þær ferðaþjónustur sem eru ekki hér í nágrenni Reykjavíkur. Það er einfaldlega rökrétt að mismunandi reglur gildi um stórnotendur og einstaklinga. Þessir stórnotendur eru bílaleigurnar og bílaleigurnar eru blóðið í ferðaþjónustunni og það þarf að streyma út í alla hluti eða alla parta líkamans sem er þá Ísland.
Ísland er dýrt land og ef við ætlum að auka kostnað við að ferðast lengra frá og að ferðamennirnir eyði sínum peningum í fjarlægari landshlutum, þá erum við að vinna gegn byggðafestu í landinu. Bílaleigur eru með hundruð eða þúsundir ökutækja í sínum flotum og það þarf tíma til að byggja upp gagnagrunn, ný ferli og kerfi til að skrá og greiða gjöld og við sem þingmenn hér á Alþingi Íslendinga verðum að gera okkur grein fyrir því. Atvinnulífið er vissulega fljótt að bregðast við en það þarf ákveðinn aðlögunartíma. Það er ekki hægt að setja sama ramma utan um einstakling með einn bíl eða fyrirtæki með 100 eða 1.000 bíla í rekstri. Það þarf að viðurkenna að bílaleigur vinna vinnu fyrir hið opinbera. Þær innheimta skatt, halda utan um gjöld, greiða færslugjöld til kortafyrirtækja og fjárfesta í hugbúnaði til að uppfylla lagaskyldur. Það er eðlilegt að slík þjónusta sé metin til einhvers. Bílaleigur leggja einnig áherslu á að ef bíll er skráður í daggjaldsflokk að það verði hægt að flytja hann um flokk í hefðbundinn flokk, annars getur það skekkt rekstur og gert þeim erfitt fyrir að mæta eftirspurn eftir langtímaleigu eða leigu til Íslendinga sem aka minna. Slíkur sveigjanleiki er nauðsynlegur til að kerfið virki í raun.
Virðulegi forseti. Þessi gagnrýni bílaleiga er ekki bara einhver fýla frá einhverjum atvinnurekstri. Þetta er ákveðinn raunveruleiki sem blasir við þessari atvinnugrein. Ég gæti tekið hér orð annarra hv. þingmanna sem hafa rætt hér um aukinn kostnað og skatt á landsbyggðina en ég ætlaði bara að taka afmarkað dæmi um bílaleigur til að sýna það að ríkisstjórnin þarf að skoða athugasemdir sem birtast. Nú hefur ríkisstjórnin haft langan tíma frá því að málið kom fram fyrst á síðasta þingi og til dagsins í dag, en breytingarnar á frumvarpinu eru afar litlar. Við verðum að hlusta á þá sem eru hér hlaupandi út um borg og bý til að skapa atvinnutekjur fyrir sjálfan sig og svo sækir náttúrlega ríkið í það. Það er rödd atvinnulífsins, höndin sem fæðir þjóðina, sem við eigum að hlusta á. Ríkið vill sífellt taka til sín stærri hluta af kökunni. Þegar kakan minnkar þá lækkar heildarskattsporið, þannig að ég vil bara hvetja þingið til að senda þetta aftur inn í efnahags- og viðskiptanefnd til þess að málið fái dýpri og betri umfjöllun. Ég hefði viljað fá ráðherra hér í salinn en hann er búinn að vera hér undir mestallri umræðunni og ber að þakka honum fyrir það. — Ég lýk hér máli mínu.