157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:14]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ef þetta er bara tekið saman í eitt einfalt dæmi — af því að hæstv. ráðherra virðist vera hreinlega ósammála mér í því hvernig tölulegar niðurstöður líta út við útreikning þá verður bara að horfa á eitt dæmi: Ökutæki sem er notað til flutninga frá Húsavík til Reykjavíkur árið um kring. Því er ekið að meðaltali eða rétt um 120.000 km á ári. Við þessa breytingu fer innheimtan úr rúmum 2 milljónum í rúmar 7 og síðan kemur olíugjaldið til frádráttar. Eftir stendur á akkúrat þennan bíl óútskýrð hækkun upp á 800.000 kr. Vissulega er þetta kannski ekkert rosalega há tala, 800.000 kr. Þetta er líka bara einn bíll. Hvað verður gert við þennan 800.000 kall? Hver borgar hann? Það verður ekki sá sem á bílinn, það liggur algerlega fyrir. Hæstv. ráðherra þekkir það jafn vel ef ekki betur en flestir hvernig þarf að eiga við slíkar tölur í rekstri. Þessu verður að sjálfsögðu velt út í vöruverðið, þ.e. Cheerios-pakkinn verður bara dýrari í búðinni og fiskurinn sem þarf að komast suður í flug eða á markað hér fyrir sunnan verður líka dýrari.

Annað sem kom kannski fram — ég er að vísu að brenna inni á tíma, ég vík kannski betur að því í seinna svari. Ég held að hæstv. ráðherra hafi verið að tala sig í þá átt sem varðar þessa jöfnun sem er gerð tilraun til að ná fram fyrir landsbyggðina. Ég get komið aðeins betur inn á það í seinna svari.