staðfesting ríkisreiknings 2024.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2024 í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Ríkisreikningur er gerður á grundvelli alþjóðlegs reikningsskilastaðals fyrir opinbera aðila, svonefnds IPSAS-staðals.
Áritun ríkisendurskoðanda er án fyrirvara en með ábendingu um innleiðingu á breyttum reikningsskilum vegna útreiknings á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs þar sem notað er 3,5% vaxtaviðmið samkvæmt reglugerð um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða en samkvæmt IPSAS-stöðlum skal nota ávöxtunarkröfu áhættuminnstu ríkisskuldabréfa í núvirðisútreikningum. Þess má geta að verðtryggð krafa á markaði á ríkisbréfum er á bilinu 2,9–4,7% eftir líftíma kröfunnar.
Reikningurinn er settur fram í annað sinn sem heildarsamstæðuuppgjör fyrir A-, B- og C-hluta ríkissjóðs þar sem A-hlutinn skiptist í A1-, A2- og A3-hluta.
A1-hluti er sú starfsemi ríkisins sem er einkanlega fjármögnuð með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum. Í séryfirliti 1 í frumvarpinu er birt yfirlit um afkomu fyrir A1-hluta ríkissjóðs.
Rekstrarafkoma samstæðu ríkisins fyrir árið 2024 var neikvæð um 55,9 milljarða. Tekjur námu samtals 1.425 milljörðum og þar af voru skatttekjur 1.100 milljarðar. Gjöld ríkissjóðs fyrir fjármagnsliði námu um 1.428 milljörðum.
Forseti. Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir samstæðu samtals 5.983 milljarðar, skuldir og skuldbindingar samtals 5.815 milljarðar og eigið fé 168 milljarðar.
Rekstrarafkoma ríkisreiknings er birt samkvæmt reikningsskilastaðli fyrir opinbera aðila, IPSAS, eins og ég hef áður nefnt, en heildarafkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum er birt samkvæmt hagskýrslustaðli, svonefndum GFS-staðli. Báðum aðferðum er ætlað að tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni. Afkoma ríkissjóðs samkvæmt ríkisreikningi er því ekki sambærileg við afkomumarkmið fjármálaáætlunar og fjárlaga.
Í ríkisreikningi er birt séryfirlit þar sem niðurstaðan er flokkuð í samræmi við GFS-flokkun fjárlaga og gerð samanburðarhæf við samþykkt fjárlög sem er í samræmi við A1-hluta ríkissjóðs. Afkoman á þeim grunni reyndist neikvæð um 62 milljarða.
Forseti. Að svo mæltu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.