157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Síðasta ríkisstjórn var með mörg mál á sinni dagskrá sem ekki voru hagfelld landsbyggðinni. Nú tekur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur við og gefur í. Það skal hjólað í íslenskan landbúnað einu sinni enn. Frumvarp um sýslumenn, sem veita grunnþjónustu á landsbyggðinni. Innviðaráðherra boðar reglugerðarbreytingar um útgáfu ökuskírteina sem mun án efa hafa neikvæð áhrif í sveitum landsins. Breytingar á helmingaskiptareglu ríkis og sveitarfélaga hvað varðar snjómokstur og hálkuvarnir. Kílómetragjald á ökutæki sem hækkar verð úti á landi og skekkir samkeppnisstöðu landsbyggðarfyrirtækjanna. Og það þýðir lítið að benda á flutningsjöfnunarsjóð enda er hann vanfjármagnaður og ekki í neinum færum til að mæta slíkum álögum. Snörp hækkun veiðigjalda er nú þegar farin að hafa áhrif, til að mynda á þau fyrirtæki sem sinna íslenskum sjávarútvegi, þjónustufyrirtækin. Hækkun vörugjalda á bifreiðar en víðast hvar á landsbyggðinni er ekki um neinar raunverulegar almenningssamgöngur að ræða og bifreiðin því eini raunverulegi valkosturinn til að komast á milli staða. Þvingaðar sameiningar sveitarfélaga. Árás á íbúalýðræði. Ráðherra dregur að upplýsa um línuívilnanir og býr til fullkomna óvissu og skilja má ráðherra sem svo að þeirra upplýsinga sé ekki að vænta fyrr en eftir áramót. Fiskveiðiárið byrjaði í september.

Frú forseti. Þessi ríkisstjórn er 101 latté-ríkisstjórn.