157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Í síðustu viku fór fram Menntakvika, árleg ráðstefna haldin af menntavísindasviði Háskóla Íslands þar sem mörg áhugaverð erindi fóru fram í nýjum og glæsilegum húsakynnum menntavísindasviðs í húsnæði Sögu. Eitt af því sem náði fjölmiðlaumfjöllun, og skiljanlega, var erindi Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektors í tómstunda- og félagsmálafræði, en hún var að rýna í gögn þar sem teknar eru út eineltistölur í grunnskólum landsins. Þær tölur eru heldur betur sláandi. Nýjustu tölur sýna að 27,8% barna í 6. bekk hafa verið lögð í einelti á síðustu tveimur mánuðum að eigin sögn. 13,3% sögðu að þau hefðu verið lögð í einelti tvisvar eða þrisvar í mánuði eða oftar. Þessar tölur eru sláandi en þær eru líka sláandi vegna þess að þetta er tvöföldun frá árinu 2006. Einelti í 6. bekk hefur tvöfaldast frá árinu 2006. Á sama tíma og við teljum okkur alltaf vera að efla fagstarf og koma betur til móts við börnin okkar þá er einelti að tvöfaldast í þessum viðkvæma aldurshóp.

Þetta er óásættanlegt ástand en líkt og Vanda sagði sjálf er þetta ekki tækifæri til að benda fingrum á þá sem eru að klikka heldur að við tökum höndum saman um hvernig við getum komið í veg fyrir einelti í grunnskólum landsins. Við höfum því miður einnig séð í fjölmiðlum allt of margar harmsögur af einstaklingum sem lagðir hafa verið í einelti, sem flosnuðu upp úr námi, leiddust út í fíkn og enduðu jafnvel á að taka eigið líf. Þetta er verkefni sem við verðum að taka alvarlega og forgangsraða fjármunum í að fjárfesta í forvörnum. Það er gríðarlega kostnaðarsamt ef við ætlum að reyna að koma til móts við þá sem hafa lent í þessari upplifun, við þurfum að fókusa á það hvernig við komum í veg fyrir það. Ef ég hefði meiri tíma myndi ég koma inn á það hvernig við gerum það en ég geri það síðar.