157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það verður að segjast eins og er að það skaut aðeins skökku við þegar flokkurinn sem gefur sig út fyrir að vera eini stjórnmálaflokkurinn sem lætur sig menntun ungmenna varða sá ástæðu til þess að agnúast út í starfslaun rithöfunda. Ég spyr: Hvernig er hægt að tala um að efla læsiskennslu í öðru orðinu og hjóla svo í þá sem verja starfsævi sinni í að skapa ritverk í hinu orðinu? Íslenska er örtungumál og það gerir það nánast ómögulegt að ritstörf séu sjálfbær. Það hefði verið auðvelt að finna út úr því ef vilji hefði verið fyrir hendi.

Ég kenni unglingum íslensku. Ég hef gert það um langt árabil. Mikilvægur þáttur í starfi mínu er að vekja lestraráhuga hjá börnum og ungmennum. Það felur í sér að aðstoða þau við að velja bækur sem líklegar eru til að kveikja áhugann, hlusta á þau segja frá bókum sem þau lásu og lesa ritgerðir þar sem þau kafa undir yfirborð bókmennta, velta fyrir sér umfjöllunarefni sagna, persónusköpun, boðskap og lærdómi sem draga má af lestrinum. Við leitum víða fanga, förum oft á bókasafn bæði innan og utan skóla, skoðum sérstaklega nýútkomnar bækur samhliða eldri bókmenntaverkum. Ég get upplýst að ritverk höfunda sem spjótunum var beint að eru lesin ár eftir ár. Nei, það kom nefnilega ekki fram í þessari umfjöllun hversu mikið lesnar bækur þessara rithöfunda eru.

Virðulegi forseti. Við eigum rithöfundum okkar mikið að þakka. Þeir skrifa þrátt fyrir að afkoma þeirra sé ekki tryggð. Þeir halda áfram að segja okkur sögur, auðga líf okkar og síðast en ekki síst stuðla að læsi ungmenni okkar þó að afkoma þeirra sé ekki tryggð. Það á að vera okkur kappsmál að fjárfesta í bókmenntum og mikið er í húfi.