157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Full ástæða er til að hafa áhyggjur af rekstrarumhverfi íþróttafélaga, ekki síst mikilvægu hlutverki sjálfboðaliða. Íþróttafélögin hafa verið að glíma við skattyfirvöld undanfarna mánuði eftir að Skatturinn áréttaði við þau að forsvarsmenn félaganna beri ábyrgð á staðgreiðslu skatta og tryggingagjalds. Vakin var sérstök athygli á því að samkvæmt regluverki Skattsins geta forsvarsmenn íþróttafélaganna, sem oft eru sjálfboðaliðar, sætt refsiábyrgð skili viðkomandi íþróttafélag ekki gögnum til skattyfirvalda innan tilskilins tíma og komi í ljós að skattskil hafi ekki verið eftir bókinni. Það gefur augaleið að sjálfboðaliðar sem sinnt hafa óeigingjörnu hugsjónastarfi fyrir félagið sitt, jafnvel í áraraðir, íhugi stöðu sína eigi þeir yfir höfði sér að vera dregnir til refsiábyrgðar vegna skattskila.

Í júní síðastliðnum kom fram í svari hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn minni um rekstrarumhverfi íþróttafélaga að myndaður yrði sérstakur vinnuhópur með fulltrúum ráðuneyta, Skattsins og íþróttahreyfingarinnar til að fara yfir þessi mál. Samkvæmt mínum upplýsingum miðar þeirri vinnu frekar hægt en hún er þó í gangi. Skýtur þá skökku við að nú fyrir helgi hafi tugir íþróttafélaga um land allt fengið harðort bréf frá Skattinum um skattskyldar upplýsingar frá félögunum sem yrði að senda innan skamms tímafrests og lögð var áhersla á að fá ítarlegar upplýsingar um þann hjá félaginu sem innir ýmsar greiðslur af hendi, sem mjög oft er einmitt sjálfboðaliði. Þessa erfiðu stöðu þarf að leysa og hefði verið heppilegra af hálfu skattyfirvalda að hinkra með slíkt bréf á meðan á vinnu umrædds starfshóps stendur. Það er algerlega óþarfi að ala á enn meiri óvissu. Við eigum að sameinast um að skapa jákvæða hvata og styðja vel við bakið á íþróttastarfsemi í landinu í stað þess að ríkið sé á bakinu á félögunum og hyggist jafnvel beita þau refsiaðgerðum.