157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Í síðustu viku átti ég þess kost að heimsækja Akranes og sækja fund sem Félag eldri borgara á Akranesi hélt. Þar var rætt um málefni sem skiptir okkur, held ég, öll máli um það hvernig við getum tryggt að það sé gott að eldast hér á Íslandi. Það voru þarna nokkrir fyrirlestrar sem ég hlýddi á og hlustaði vel eftir en það var sérstaklega einn sem sat í mér eftir þennan góða fund. Hann fjallaði um ofbeldi gegn eldra fólki. Þar kom fram að eldra fólk er jafnvel í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi en yngra fólk og oft af hendi nákominna einstaklinga sem það treystir fyrir umönnun í daglegu lífi. Það braut í mér hjartað að hlusta á þennan fyrirlestur og átta mig á því að þarna er auðvitað verið að tala um ömmur okkur og afa okkar, fólk sem við elskum og viljum hugsa vel um. En það er ofboðslega algengt að fólk þori hreinlega ekki segja frá ofbeldinu af ótta við að missa tengsl og umhyggju. Þögnin er þá skjól gerandans. Við verðum einhvern veginn að ná betur utan um þetta vegna þess að þetta er auðvitað fólkið sem ruddi brautina fyrir okkur hin og á skilið að eldast í öruggu umhverfi.

Forseti. Við verðum að rjúfa þessa þögn og það er okkar sameiginlega ábyrgð að tryggja ekki bara að það sé gott að eldast á Íslandi heldur líka öruggt. Mig langar að nýta tækifærið hér og hrósa þeim sem hafa staðið fyrir vitundarvakningu um þetta alvarlega mál. Birtingarmyndirnar eru sannarlega margar en allt er þetta brot á mannlegri reisn. Við sem sitjum hér á Alþingi berum okkar ábyrgð og við eigum að bregðast við og hlusta. Við eigum að tryggja að þjónustan sem fólk reiðir sig á sé samfelld, að eftirlitið sé virkt og að enginn þurfi að lifa ævikvöldið í ótta.