157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

stjórnsýslulög.

143. mál
[14:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og hæstv. forsætisráðherra nefndi þá hefur þetta mál tvisvar áður verið lagt fram hér á Alþingi og ekki verið útrætt og það er kannski ástæða fyrir því. Mig langaði að spyrja í fyrsta lagi hæstv. forsætisráðherra, þó að þetta frumvarp hafi ekki verið samið í hennar tíð sem forsætisráðherra, hvort hún hafi upplýsingar um það hverjir eða hvað það var sem þrýsti á um að þetta frumvarp yrði samið. Það kemur ekki fram í greinargerðinni í sjálfu sér hvert tilefnið raunverulega er. Það er auðvitað rétt að það eru skiptar skoðanir meðal fræðimanna á því hvort þessi heimild sé fyrir hendi en það eru líka skiptar skoðanir á því meðal fræðimanna hvort þessi heimild skuli vera fyrir hendi, sérstaklega þegar kemur að stjórnsýslunefndum, jafnvel varðandi heimild dómstóla en ég læt það nú liggja milli hluta í þessari umræðu.

Í ljósi þess þá langar mig að vita hvort hæstv. forsætisráðherra kunni söguna á bak við það af hverju ráðist var í samningu þessa frumvarps vegna þess, eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, að það reynir afar sjaldan á þetta. Það er svo sem ekki fjallað um það hversu oft hefur komið fram beiðni um að leitað sé ráðgefandi álits við meðferð stjórnsýslumála. Þetta eru kannski atriði sem mér finnst þurfa að liggja fyrir. Þegar kemur síðan að efnisatriðum þessa frumvarps þá finnst mér blasa við að þetta mál geti í öllu falli aldrei orðið afgreitt hér á þinginu án breytinga. Þetta kallar síðan á sérstaka umræðu, t.d. um lengingu, óhjákvæmilega afleiðingu sem það myndi hafa í för með sér að leita ráðgefandi álits til EFTA-dómstólsins sem væri miklum mun lengri málsmeðferðartími fyrir stjórnsýslunefnd. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig hún sér það, svona í ljósi markmiða þessarar ríkisstjórnar um að einfalda einmitt regluverk og einfalda ferla við ákvarðanatöku í nefndum.