stjórnsýslulög.
Virðulegur forseti. Hér liggur fyrir mál sem hefur tvívegis verið lagt fram á Alþingi en ekki náð fram að ganga, án þess að ég kunni skýringar á því. Ég tel, a.m.k. miðað við umræður við framsögu málsins í fyrra skiptið, að menn hafi mögulega velt fyrir sér hvort málið væri nægilega vel útbúið fyrir þinglega meðferð eða hvort það þyrfti ekki að taka einhverjum breytingum, a.m.k. lögðu einhverjir þingmenn fram ábendingar um að það væri kannski ekki alveg einfalt að veita stjórnsýslunefndum heimild til að kalla eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins án þess að fleira myndi fylgja.
Virðulegur forseti. Það er rétt að hafa í huga að stjórnsýslunefndir kveða ekki endanlega upp úr um réttindi eða skyldur aðila sem til þeirra leita. Allar ákvarðanir stjórnsýslunefnda er hægt að bera undir dómstóla. Það er svona grundvallaratriði í okkar réttarfari og menn þurfa að hafa það í huga þegar þeir fjalla um heimild sem þessa. Það liggur nú þegar fyrir heimild dómstóla til að óska eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, bæði héraðsdómstóla og dómstóla á æðri stigum. En mig langaði við framsöguna að nefna nokkur atriði sem ég tel að þyrfti að hafa í huga við umfjöllun málsins ef það mætti verða hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til umhugsunar.
Það liggur auðvitað fyrir að hvort sem það væri að frumkvæði stjórnsýslunefndar eða að ósk aðila sem hefur mál fyrir nefndinni að málinu yrði vísað til EFTA-dómstólsins til álits þá hefði það óhjákvæmilega í för með sér lengri málsmeðferðartíma. Það hefði verið ágætt að fá upplýsingar um það í greinargerðinni hversu langan tíma það hefur tekið. Það hefur oft tekið marga mánuði og upp í ár og í mjög flóknum málum þætti mér ekki útilokað að ætla að það gæti jafnvel tekið meira en ár að fá niðurstöðu EFTA-dómstólsins í flóknum málum, í umfangsmiklum málum. Aukinn málsmeðferðartími hefur síðan í framhaldinu óhjákvæmilega í för með sér aukinn kostnað aðila máls. Aðilum máls er gefinn kostur á að tala fyrir máli sínu fyrir EFTA-dómstólnum og það verður auðvitað ekki gert án einhvers útlagðs kostnaðar, hvort sem það er í formi aukinnar lögfræðiráðgjafar, með aðstoð lögmanna eða lögfræðinga, og að sjálfsögðu tíma sem er auðvitað peningur líka. Þetta er því nokkuð sem þyrfti að hafa í huga. Það getur sem sagt verið þannig að þegar tveir aðilar deila í stjórnsýslunefnd og annar aðilinn óskar eftir að fá ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins — og sá sem óskar eftir því er tilbúinn að leggja í veruleg fjárútlát vegna þess — þá verði sú kvöð að á hinn aðilann komi óhjákvæmilega þessi mikli kostnaður sem hann hefur ekki forræði yfir.
Svo langar mig líka að benda á það sem var bent á við framlagningu frumvarpsins í fyrsta sinn. Það kann að vera að ef þetta frumvarp myndi ná fram að ganga eða ef áform væru um þetta þá þyrfti að gera ráð fyrir því að það væri hægt að kæra niðurstöðu stjórnsýslunefndar, úrskurð stjórnsýslunefndar um að leita ráðgefandi álits. Það þyrfti að vera hægt að kæra þann úrskurð eitthvert. Það er ekki gert ráð fyrir því í þessu frumvarpi. Þetta er atriði sem ég hvet hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að skoða sérstaklega.
Hæstv. forsætisráðherra vísaði til þess í andsvari við mig eftir framsögu hennar að umhverfissamtök hefðu gjarnan kvartað yfir því að eiga litla aðkomu að dómsmálum í stórum umhverfismálum sem varða leyfisveitingar og skipulagsbreytingar og þess háttar, þ.e. eftir að málið sleppur frá stjórnsýslunefnd þá eiga auðvitað ekki allir aðild að slíku máli. Það geta ekki allir farið með úrskurði kærunefndar fyrir dómstóla heldur einungis þeir sem hafa lögvarða hagsmuni. Þetta mikilvæga réttarfarsatriði fellur ekki öllum í geð. Þeir sem ekki hafa lögvarða hagsmuni hafa því mjög kallað eftir því að fá samt aðkomu að dómsmálum í þessum stóru málum. Við þekkjum það alveg hvernig umræðan hefur verið um virkjunarmál, um skipulagsmál og þessi mál sem tengjast umhverfinu eða nýtingu náttúrunnar. Þau fara mjög fljótt ofan í miklar skotgrafir og eru að þvælast um, fyrst í stjórnsýslunni og síðan hjá dómstólum jafnvel líka í áraraðir. Við höfum dæmi um virkjunaráform sem löggjafinn hefur verið áfram um sem hafa ekki náð fram að ganga í áratugi vegna þess að menn eru að þvæla ýmsum kærumálum og kæra hvert og eitt atriði fram og til baka.
Þetta er rakið að einhverju leyti í greinargerðinni og hæstv. forsætisráðherra nefndi þetta sérstaklega, að umhverfisamtök væru mjög áfram um það, þ.e. þessir aðilar sem ekki hafa lögvarða hagsmuni í þessum tilteknu stjórnsýslumálum, að geta leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. Það er með öðrum orðum einhvern veginn verið að veita þeim sem ekki hafa lögvarða hagsmuni leið bakdyramegin inn í mál sem þeir hafa ekki lögvarða hagsmuni í. Þau hafa leitað eftir því að vinna sinn rétt í héraði sem ekki hefur náðst að vinna hér á Alþingi. Þetta tel ég að þurfi aðeins að skoða betur. Maður greinir það svolítið af orðalagi og athugasemdum með frumvarpinu að málið megi rekja að miklu leyti til umhverfissamtaka, sem eru að mínu mati allra góðra gjalda verð og hafa oft mikilvæga aðkomu með málflutningi sínum um ýmis mál en það getur þó ekki verið að það sé sérstakt markmið að veita slíkum samtökum sem ekki hafa lögvarða hagsmuni í stjórnsýslumálum eða dómsmálum einhvers konar aðild að slíku.
Þetta er svona í grófum dráttum það sem ég hef við þetta að athuga í fyrsta sinn. Ég ætla ekki að útiloka að það sé eitthvert vit í þessu máli og áskil mér rétt til að bíða með að lýsa yfir afstöðu minni til málsins í heild. Ég tel hins vegar mjög brýnt að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði þetta mál vandlega með tilliti til þess sem ég hef verið að nefna hér og einkum og sér í lagi, líka að lokum, með það í huga, eins og fram kemur í greinargerðinni, að það getur verið mjög mikill vafi uppi um það hvernig eigi að túlka EES-réttinn. Menn halda oft að það sé eitthvert einstakt íslenskt fyrirbæri þegar menn kýta um túlkun á íslenskum lögum en ágreiningurinn er miklu víðfeðmari þegar kemur að EES-rétti erlendis. Það er einkum í ljósi þess sem það getur ekki verið þannig þegar EES-rétturinn stangast á við íslenskan rétt að EES-rétturinn gildi hér á landi. Borgararnir eiga rétt á því að byggja rétt sinn á íslenskum lagatexta, sem er kannski ágreiningslaus, en ekki á texta EES-réttarins sem getur verið margvíslegur og, eins og fram kemur í þessu frumvarpi, haft allt aðra meiningu heldur en íslenski textinn.
Ég heyri að það hefur verið vaxandi þróun, ákall um það einhvern veginn að vinna sér rétt utan Íslands í þessum málum en ég geld mikinn varhug við þeirri þróun og hvet hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til góðra verka við meðferð þessa máls.