157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[14:35]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Sigurjón Þórðarson) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir hönd atvinnuveganefndar fyrir smávægilegum breytingartillögum sem snúa að orðalagi í frumvarpi til laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Þetta mál snýst um riðuveiki o.fl. Það er virkilega gleðilegt að geta tekið þetta mál hér til 2. umræðu í kjölfar ótíðinda úr Skagafirði þar sem staðfest hefur verið að riðan hafi stungið sér þar niður á búi ungra bænda. Með þessu frumvarpi bindum við nefnilega vonir við að dýrasjúkdómurinn riða sem hefur herjað á sauðfjárræktina um langt skeið heyri brátt sögunni til.

Frumvarpið felur í sér einkum þrjá þætti. Í fyrsta lagi skyldur til að rækta dýr sem eru ónæm fyrir smitefninu. Í öðru lagi að stjórnvöld fái heimild til að fylgja kvöðinni eftir, en ólíklegt er að það reyni mjög á það þar sem bændur taka skyldunni um land allt fagnandi. Í þriðja lagi að áhættumeta landsvæði út frá faraldsfræðilegri áhættu. Nefndin var bæði einhuga um málið og að afgreiða það hratt og örugglega nú á haustdögum, enda hafði farið fram mjög góð og ítarleg umræða um það á síðasta þingi, 156. löggjafarþingi.

Að lokinni 2. umræðu legg ég til að málinu verði vísað til 3. umræðu. Undir þetta álit skrifa sá sem hér stendur og hv. þingmenn í atvinnuveganefnd Bergþór Ólason, Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ingvar Þóroddsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir. Það er rétt að taka það fram að áheyrnarfulltrúinn, Þórarinn Ingi Pétursson, er málinu samþykkur. Það er því mikil samstaða um þetta mál og sömuleiðis að það fari hratt og örugglega í gegnum þingið.