dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
Frú forseti. Ég kem hér bara upp til að fagna því að við séum komin á þennan stað með þetta góða mál, að það sé komið hér til 2. umræðu. Líka ber að þakka fyrir þá samheldni sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur sýnt í þessu máli sem er mjög mikilvægt. Eins og kom fram í máli hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, framsögumanns málsins, þá er mikilvægt að koma þessu í þennan farveg. Miðað við nýjustu tíðindi, sem því miður eru enn að berast varðandi greiningu á riðu, þá undirstrikar málið sömuleiðis mikilvægi þess að stjórnvöld sýni frumkvæði og vilja til að sýna fram á að baráttunni við riðu er hvergi nærri lokið.
Með nýjum arfgerðum og ræktun þeirra sjáum við vonandi fyrir endann á þeim endalausa, því miður, niðurskurði sem hingað til hefur verið okkar eina verkfæri í baráttunni gegn riðunni. Sömuleiðis eru náttúrlega þær fréttir af þeim bæ þar sem þessi riða greindist nýverið að líklega um helmingur fjárstofnsins sé með verndandi eða tiltölulega verndandi arfgerð þannig að það þarf ekki að fara í heildarniðurskurð á þessu búi. En mikilvægt er að í þessu frumvarpi er t.d. tekið nokkuð vel utan um þá sem verða fyrir því að riða greinist. Það kemur vel fram í frumvarpinu hvernig eigi að taka á því vegna þess að þetta hefur oft verið hálfpartinn í lausu lofti þegar kemur að því hvernig eigi að ganga frá þeim bótum sem þurfi að koma til ef af niðurskurði verður.
Mikilvægt er að frumvarpið sé komið fram og baráttan við riðuna er í fullum gangi með kynbótastarfi og við stefnum að því innan ekki svo margra ára að geta sagt að við séum komin með riðuþolinn stofn hér á landi heilt yfir, þ.e. þessar arfgerðir sem að eru til staðar í dag, ARR og t.d. T137 sem svo sem er ekki endanlega viðurkennd en er vissulega þannig að það má vel horfa til hennar þegar kemur að verndandi aðgerðum. En mikilvægið er svo sannarlega fyrir hendi og þessu ber að fagna og því ber að fagna sérstaklega hversu vel Alþingi hefur staðið að þessu máli og að við komum þessu hratt og vel í gegnum þingið.