157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[14:49]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, framsögumanni málsins, fyrir að kynna það hér, vinnu nefndarinnar. Það er ánægjulegt að við séum komin á þennan stað með jafn mikilvægt mál fyrir samfélagið. Riðuveiki hefur herjað á lengi og haft alveg gríðarlega mikil áhrif á líf í sveitum landsins. Áhrifin hafa verið mjög þungbær þegar riðuveiki kemur upp á bæjum og auðvitað mjög mikilvægt að við sem samfélag grípum til aðgerða til að ná betri tökum á þessu.

Það er auðvitað verulega gott með okkar fræðafólki og öflugum bændum í landinu að við séum komin á þann stað að það séu komnar aðgerðir sem hafa verulega jákvæð áhrif á stöðu mála og áhrif hjá bændum. Þetta mál er, eins og hefur komið fram, í meginatriðum þríþætt og er að styrkja stoð og veita heimildir fyrir ráðherra til að beita sér í þessum málum. Það er vel og mikilvægt og ég fagna því sérstaklega að svo sé komið. Alltaf, eins og ég sagði áðan, þegar það hefur þurft að fara í niðurskurð, þá hefur það haft verulega neikvæð áhrif á stöðu bænda og því er þetta auðvitað bara gríðarlega mikilvægt skref.

Mig langaði síðan aðeins líka að koma inn á það að vinnan í nefndinni var alveg gríðarlega góð, bæði á þessu löggjafarþingi, 157., en jafnframt á því fyrra, 156., þar sem málið komst því miður ekki alla leið í meðförum þingsins, en algjör samstaða var um það hjá nefndinni að koma fram með nefndarálit. Þar af leiðandi er öll nefndin á álitinu og ég þar upp talinn þó að það hafi kannski gleymst í kynningunni áðan. En það er auðvitað bara gríðarlega mikilvægt að það sé mikil samstaða um mál sem þetta, enda gríðarlega mikilvægt fyrir fólk, bændur og samfélagið í heild sinni og snertir auðvitað á öllum þessum þáttum.

Ég vil bara að lokum þakka nefndarmönnum kærlega fyrir vel unnin störf. Vonandi náum við að klára þetta mál sem allra fyrst hér á þinginu og klára 3. umræðu.