157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[14:52]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að mæla fyrir nefndarálitinu. Þetta er brýnt mál. Þetta er reyndar mál sem ég held að við hugsum öll um í dag að við hefðum átt að klára á síðasta þingi og látum okkur það að kenningu verða. Ég nefndi að þetta er brýnt mál. Riðan hefur verið lengi með okkur og ekki mjög langt síðan við uppgötvuðum að það væri mögulega hægt að rækta riðuvarnir inn í íslenskt sauðfé og hefur verið haldið mjög vel á því máli, vil ég leyfa mér að segja, og ánægjulegt að mögulega séum við búin að finna varanlega vörn gegn þessum vágesti.

Ég þakka nefndinni fyrir skjóta og góða afgreiðslu og fyrir að sýna þessa samstöðu að klára þetta mál eins fljótt og unnt er og það er ánægjulegt að sjá að það séu allir á nefndarálitinu. Nú er það okkar þingmanna í framhaldinu að klára þessa umræðu og tryggja það að við náum að gera þessar mjög svo nauðsynlegu breytingar og stöndum öll að því.