sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. Mál þetta varðar fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík. Málið er frelsismál og því er ætlað að veita Reykjavíkurborg heimild til þess að fækka borgarfulltrúum.
Þetta frumvarp er nú lagt fram í þriðja sinn. Það var síðast lagt fram á síðasta þingi en svo sem eðlilegt að það hafi ekki komist á dagskrána í ljósi þess hversu stutt þingið var. Það er sem sagt endurflutt óbreytt. Sú sem hér stendur lagði þetta frumvarp fram hið fyrsta sinn á 155. löggjafarþingi, nánar tiltekið árið 2015. Þá voru borgarfulltrúar Reykjavíkur 15. Lög nr. 138/2011, sveitarstjórnarlögin, voru frá upphafi þannig úr garði gerð að kveðið var á um heimild sveitarfélaga með tiltekinn fjölda, þeim var gefið var ákveðið svigrúm frá 15 og upp í 23 borgarfulltrúa. Það var síðan 19. september 2017 sem borgarstjórn samþykkti að fjölga borgarfulltrúum í 23 á því kjörtímabili sem hófst þar á eftir. Sveitarfélögunum var sem sagt í sjálfsvald sett að nýta þessa spönn. Ég kann að hafa mismælt mig hér á undan, virðulegur forseti, en nú eru hins vegar mörkin þau að lágmarksfjöldi fyrir sveitarfélag eins og Reykjavík er 23.
Fjölgunin á sínum tíma var eingöngu rökstudd með því ákvæði sem hafði verið innleitt með sveitarstjórnarlögunum árið 2011 þar sem gert var ráð fyrir því að mörkin miðuðust við 23. Í 1. mgr. 11. gr. sveitarstjórnarlaganna núna er kveðið á um fjölda sveitarstjórnarmanna í sveitarfélögum og í 4. tölulið málsgreinarinnar segir að þar sem íbúar séu 50.000–99.999 skuli sveitarstjórnarmenn vera 15 hið fæsta en 23 hið flesta. Í 5. tölulið segir að þar sem íbúar séu 100.000 eða fleiri skuli sveitarstjórnarmenn vera 23 hið fæsta og upp í 31 aðalmann, eins og það er orðað. Það er auðvitað augljóst að þessi 5. töluliður var ætlaður Reykjavík. Það er því þannig að samkvæmt sveitarstjórnarlögum er Reykjavíkurborg ekki heimilt að ákveða að borgarfulltrúar verði færri en 23. Það eru þeir núna orðnir og þeir hafa aldrei verið fleiri.
Það er rétt að ég fari örstutt yfir söguna, sem er svo sem rakin í athugasemdum með þessa greinargerð. Á kjörtímabilinu 1978–1982 var ákveðið að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 21 en strax á næsta kjörtímabili ákvað borgarstjórn að fækka þeim aftur, þannig að sú fjölgun kom ekki til framkvæmda. Það hefur ekki verið ástæða að mati Reykjavíkurborgar til að fjölga þeim aftur, eða var það ekki þar til að menn gerðu það árið 2017, og að mínu mati er engin ástæða til þess að með ákvæði eins og þessu sem ég hef rakið í sveitarstjórnarlögum þvingi löggjafinn borgaryfirvöld til þess að hafa að lágmarki 23 borgarfulltrúa. Þeir voru lengst af 15 fram að þessari breytingu. Þess vegna legg ég til að það sama eigi við um Reykjavíkurborg og sveitarfélög sem kveðið er á um í 4. tölulið 1. mgr. 11. gr. sveitarstjórnarlaganna þar sem íbúar eru fleiri en 50.000.
Það er rétt að það komi fram hér að með þessari breytingu sem varð 2017 þá eru í Reykjavík u.þ.b. 6.030 íbúar á hvern borgarfulltrúa. Þetta er mjög hátt í samanburði við aðrar höfuðborgir á Norðurlöndum. Í rauninni er þetta hlutfall langhæst í Reykjavík. Í Kaupmannahöfn eru til að mynda 11.600 íbúar á borgarfulltrúa, í Ósló eru 11.960 íbúar á borgarfulltrúa, í Stokkhólmi eru 9.740 íbúar á hvern borgarfulltrúa og í Helsinki eru þeir 8.081 á hvern borgarfulltrúa. Í Reykjavík er hlutfall borgarfulltrúa því langhæst.
Það er líka vert að athuga að hér í Reykjavík, ólíkt öðrum stórborgum í kringum okkur, eru borgarfulltrúar í fullu starfi og þess utan er fyrsti varamaður fyrir hvern stjórnarflokk einnig á fullum launum þótt það séu eitthvað lægri laun. Ég held að laun fyrir fyrsta varamann hvers stjórnmálaflokks í borgarstjórn séu um 70% af launum borgarfulltrúa en þess utan fær þessi fyrsti varaborgarfulltrúi einhvers konar nefndarálag, þannig að laun fyrsta varaborgarfulltrúa nálgast nú mjög, held ég, full laun borgarfulltrúa. Það má því segja að það sé í rauninni 31 kjörinn fulltrúi á fullum launum í borgarstjórn Reykjavíkur. Bara til samanburðar er fyrsti varamaður okkar þingmanna ekki á neinum launum og varamenn þiggja ekki þingfararkaup nema þegar þeir taka sæti á þingi. Þessu er sem sagt öðruvísi farið í borgarstjórn þar sem fyrsti varaborgarfulltrúi er á þessum föstu launum sem ná, að ég held að mér sé óhætt að fullyrða, hátt í full laun borgarfulltrúa þótt viðkomandi sé ekki kjörinn borgarfulltrúi, svo ég árétti það.
Þetta mál er í sjálfu sér bara frelsismál. Það er verið að leggja hér til að hámarksfjöldi borgarfulltrúa verði færður niður í 23 og að mínu mati er mjög mikilvægt að sveitarfélög hafi sjálfdæmi um fjölda sveitarstjórnarmanna. Þróunin hefur verið í átt til fækkunar sveitarstjórnarmanna en ekki fjölgunar. Það hefur reynst mjög erfitt víða úti á landi að manna fjölmennar sveitarstjórnir. Svo hafa sum sveitarfélög borið gæfu til þess að vega og meta fjölda sveitarstjórnarmanna í ljósi efnahagsástandsins á hverjum tíma í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Þannig hafa einhver sveitarfélög verið að fækka sveitarstjórnarmönnum og ég hef ekki heyrt annað en að það hafi bara gengið alveg ágætlega.
Nái þetta mál fram að ganga yrði það hins vegar auðvitað borgarstjórn Reykjavíkur sjálf sem myndi ákveða fjölda borgarfulltrúa. Ég myndi fyrir mitt leyti hvetja borgarstjórn Reykjavíkur til þess að fækka borgarfulltrúum. Ég held að reynslan af þeirri fjölgun sem varð árið 2017 sé ekkert sérstök. Maður heyrir það og greinir það í kringum sig að að fáir borgarbúar þekki borgarfulltrúa með nafni, alla þessa borgarfulltrúa, jafnvel ekki einu sinni borgarfulltrúa þess flokks sem það sem kaus. Svo þegar við bætast varaborgarfulltrúarnir, átta talsins, þá er þetta orðin heilmikil súpa og ég held að þessi fjölgun hafi ekki aukið á heildarsýn borgarfulltrúa á málefni borgarinnar, þá heildarsýn sem hver einasti borgarfulltrúi verður að mínu mati að hafa.
Þegar borgarfulltrúum var fjölgað með þessum hætti var það kannski öðrum þræði gert til þess að menn gætu skipt með sér verkum. Einn borgarfulltrúi hefur augun á íþróttamálum, annar á leikskólamálum, enn annar á samgöngumálum og þar fram eftir götunum. Ég held að þetta sé ekki heppileg þróun þegar kemur að pólitískri stefnumótun í Reykjavík, sem þarf að vera fyrir hendi af því að við höfum síðan starfsmenn í Ráðhúsinu, starfsmenn borgarinnar sem inna þau framkvæmdaratriði af hendi sem liggja fyrir og þarf að gera á hverjum tíma. En pólitískt kjörnir fulltrúar þurfa að geta svarað fyrir pólitíska stefnumótun og hafa pólitíska sýn á öll borgarmálin, ekki bara einstaka þætti borgarmálanna.
Ég held að margir borgarbúar upplifi að það í rauninni beri enginn borgarfulltrúi ábyrgð á einu eða neinu þegar kemur að öllum þeim óteljandi atriðum sem hafa farið úrskeiðis við stjórn borgarinnar á síðustu árum af því að menn vantar þessa heildarsýn. Það er gott og gilt og ég ætla ekki að draga úr því að það er auðvitað mikilvægt að einhverjir borgarfulltrúar sérhæfi sig kannski og þekki betur einstaka málaflokka. En það er ekki gott þegar borgarfulltrúar skýla sér á bak við það að þeirra áherslur liggi bara á einhverju einu tilteknu sviði, einu eða tveimur. Ég held að samtalið við borgarana, Reykvíkinga, hafi síst batnað með fjölgun borgarfulltrúa. Ég held að ég þori að fullyrða að samtal hins venjulega Reykvíkings við borgarfulltrúa hafi jafnvel aldrei verið minna en einmitt núna.
Hér áður fyrr tóku borgarstjórar, a.m.k. einhverjir borgarstjórar, á móti borgarbúum reglulega og menn vissu nákvæmlega hverjir voru borgarfulltrúar og menn hikuðu ekki við að senda borgarfulltrúa erindi til þess að reyna að fá úrlausn sinna mála eða benda á það sem betur mætti fara í borginni. Ég held, og ég heyri það líka frá ýmsum borgarfulltrúum, að þetta sé mjög breytt í dag. Auðvitað getur það verið tíðarandinn að einhverju leyti en ég held að það sé líka öðrum þræði vegna þess að borgarfulltrúarnir hafa fjarlægst Reykvíkinga og veigra sér við að setja nafn sitt og andlit við þau mörgu vandasömu verkefni sem eru til úrlausnar í borginni á hverjum tíma. Það er auðvitað ekkert skemmtilegt að þurfa að svara t.d. fyrir það ástand sem er í leikskólum borgarinnar um þessar mundir eða svara fyrir umferðarhnútana sem eru hér úti um alla Reykjavíkurborg. Það er auðvitað ekki vinsælt en það er bara óhjákvæmilegt að borgarfulltrúar gerir það, svari til saka þegar það á við vegna þess að þetta eru auðvitað ákvarðanir sem þeir bera ábyrgð á. Þetta eru ákvarðanir sem þeir bera ábyrgð á, ákvarðanir um að ráðast ekki í gerð mislægra gatnamóta þar sem er augljós þörf á því. Þar sem Vegagerðin hefur augljóslega bent á þörfina fyrir mislæg gatnamót t.d. þá er það ákvörðun að gera það ekki og á þeirri ákvörðun bera borgarfulltrúar ábyrgð. Þeir skýla sér að mínu mati hver á bak við annan í þessum efnum, það mætti segja það, og það verður auðvitað auðveldara eftir því sem borgarfulltrúar eru fleiri.
Fleiri mál mætti nefna, eins og leikskólamálin. Það er auðvitað ákvörðun borgarfulltrúa að hafa ekki tekið ákvörðun um að brjóta upp þetta forneskjulega og þetta furðulega kerfi sem er ekki að þjóna þörfum borgarinnar í leikskólunum. Það er ákvörðun borgarfulltrúanna að hafa ekki gert nokkurn skapaðan hlut í því nema þrátta um og stagbæta eitthvert gjaldskrárkerfi. Það má öllum vera ljóst að það þarf að gera miklu meira í leikskólamálum í Reykjavíkurborg heldur en að breyta gjaldskrá frá degi til dags og gefa afslætti hægri og vinstri og takmarka tíma, takmarka þjónustu við borgarbúa. Það þarf að gera eitthvað allt annað. Það þarf auðvitað að brjóta þetta kerfi algerlega upp, hugsa það upp á nýtt, fela öðrum en Reykjavíkurborg að reka leikskóla. Það er augljóst að Reykjavíkurborg getur ekki rekið leikskóla. Það er alveg augljóst. Það má öllum vera það ljóst. Það er ákvörðun borgarfulltrúa sem þeir hafa tekið að gera það ekki heldur að velta sér upp úr vandamálunum og stagbæta eða telja sig vera að stagbæta handónýtt kerfi.
Því miður hefur vandamálum sem þessum á sviði samgöngumála, leikskólamála — sem ég þreytist nú reyndar ekki að benda á að er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga en það er oft talað eins og það sé alfa og ómega sveitarfélaga að reka leikskóla. Það er það ekki og menn þurfa að komast upp úr þeirri villuhugsun að það sé þannig þótt sveitarfélögin eigi að sjálfsögðu að liðka til fyrir rekstri leikskóla og þjónustu við fjölskyldufólk, það á að gera það, með allt öðrum hætti en að vera sjálft að reka leikskóla.
Þetta eru málin; samgöngumálin, leikskólamálin, þjónusta við eldri borgara hér í Reykjavík. Allt eru þetta mál þar sem vandamálin hafa farið vaxandi með árunum þrátt fyrir fjölgun borgarfulltrúa.
Ég hvet Alþingi til að að leggjast á sveif með mér og félögum mínum sem eru meðflutningsmenn, hv. þm. Bergþór Ólason og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson. Ég held mér sé alveg óhætt að upplýsa um það hér að allir þingmenn Miðflokksins styðja málið. Þótt þeir hafi ekki komist á blað hérna út af einhverri prentvillu eða formsatriðum innan þings þá eru allir þingmenn Miðflokksins sem styðja þetta sjálfræði Reykjavíkurborgar til að ákvarða fjölda borgarfulltrúa og ég vænti þess að þingheimur allur geti verið sammála mér um að það eigi að vera í höndum borgarinnar sjálfrar að ákveða þetta og það eigi ekki að hefta frelsi með því að kveða á um lágmarksfjölda, 23 borgarfulltrúa, í löggjöfinni. Svo er það bara borgarfulltrúanna sjálfra í borgarstjórn á næsta kjörtímabili að taka ákvörðun um það hvort þeir vilji halda sig við þessa 23 borgarfulltrúa eða fækka þeim eitthvað, sem ég myndi alltaf mæla með.
Að lokum, virðulegur forseti, þá vísa ég þessu máli til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.