sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Ég vil nú bara koma hérna sérstaklega upp og fagna þessu frumvarpi. Sem sveitarstjórnarmaður í rúm 12 ár þá hef ég tekið eftir þessari þróun. Eins og kemur fram í greinargerð frumvarpsins sem hér um ræðir sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen var að mæla fyrir, höfum við séð að það hefur orðin, sérstaklega í Reykjavík, ákveðin verðbólga í fjölda borgarfulltrúa. Vinstri meiri hlutinn 1978–1982 fjölgaði borgarfulltrúum úr 15 í 21 en frá því var horfið strax aftur. Ég held einmitt, og tek undir með hv. þingmanni, að ef við horfum á borgarstjórn í dag, þar sem er búið að fjölga upp í 23, þá sjáum við að það eru í rauninni 31 borgarfulltrúar, að varaborgarfulltrúum meðtöldum, á launum. Ég held að það sé í rauninni ekki til þess að auka yfirsýn eða ákvarðanatöku að vera með svona mikið af kjörnum fulltrúum á launaskrá og vera með 23 manna borgarstjórn. Það er akkúrat það sem hv. þingmaður er að koma hér með, þ.e. að veita sveitarfélögunum sjálfum það frelsi að geta ráðið þeim fjölda sem er í sveitarstjórn og í borgarstjórn.
Ég man eftir því þegar Fjarðabyggð sameinaðist á sínum tíma, þá var ákveðið að fyrsta kjörtímabilið yrðu ellefu í bæjarstjórn og síðan strax kjörtímabilið á eftir var farið niður í níu. Ég get alveg séð fyrir mér að í Fjarðabyggð eða í Múlaþingi, í svona 5.000–6.000 manna sveitarfélögum, séu sjö í sveitarstjórn. Við sem höfum starfað í sveitarstjórnarmálum þekkjum það að fjöldi bæjarfulltrúa er eitt, síðan eru allir sem taka þátt í nefndarstarfi annað. Þeir eru jafnvel ekkert í bæjarstjórn en eru að sinna nefndarstarfi fyrir sinn flokk og fá greitt fyrir það starf sérstaklega en eru annars ekkert í bæjarstjórn. Síðan þekkjum við líka í praxís að það er inni í bæjarráði þar sem öll hin raunverulega vinna fer fram; bæjarráðið hittist í hverri viku og fer mjög ítarlega yfir öll mál sem eru í gangi, þar á hin raunverulega vinna sér stað. Ég nefni Fjarðabyggð sem dæmi: Þar eru bara þrír í bæjarráði, einn frá hverjum flokki, ásamt bæjarstjóra sem situr þá fundi. Það er í rauninni eins og framkvæmdastjórnin og sama má segja um borgarráð.
Það er náttúrlega tilhneiging stjórnmálamanna, ég tek undir með hv. þingmanni, sérstaklega stjórnmálamanna sem eru á vinstri væng stjórnmálanna að búa til þessa verðbólgu og halda að lýðræðið eða skilvirknin eða yfirsýnin eða ég veit ekki hvað, aukist eftir því sem við fjölgum kjörnum fulltrúum. Ég held að það sé bara alls ekki þannig. Ég held að reynslan hafi sýnt okkur að frá 1978–1982 var ekki skilvirkari borgarstjórn eða betri yfirsýn, það var meiri kostnaður. Fara bara niður í 15 aftur, sem við vorum með alveg þangað til 2017 en þá ákvað vinstri meiri hlutinn í borgarstjórn að fara í þessa verðbólguvegferð og fjölga borgarfulltrúum aftur í 23 en í praxís, í raunveruleikanum, að vera með 31 á launaskrá. Það er ansi vel í lagt. Ég held að í þessum málum sé það mjög mikilvægt að við gefum sveitarstjórnunum — þetta er frelsismál eins og hv. þingmaður nefndi og við eigum að gefa sveitarstjórnum eins mikið svigrúm og við getum til þess að ráða fjölda og ekki að fara að setja gólf á fjölda þegar þeirra íbúafjöldi er kominn yfir einhverja ákveðna stærð. Það getur bara munað einum, tveimur, þá er þetta allt í einu komið í það að þú þarft að fara að fjölga í sveitarstjórninni. Það hefur í rauninni ekkert breyst en þú þarft að fara að fjölga.
Ég held að þetta sé mál sem ég get fullyrt að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgöngunefnd, sá sem hér stendur og hv. þm. Ólafur Adolfsson, munu styðja og tala fyrir inn í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég fagna þessu máli.