sveitarstjórnarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir að flytja þetta mál hér sem ég styð heils hugar. Ég hef reyndar líka stutt frumvörp sem ganga lengra en þetta, sem taka líka á öðrum sveitarfélögum vegna þess að í lögunum segir að þar sem íbúafjöldi er frá 10.000–49.999 þá eigi bæjarfulltrúarnir að vera 11–15. Ég var ósammála þessu á sínum tíma þegar það var verið að setja inn þessi mörk og eins og fram hefur komið í ræðum hér þá held ég nefnilega að markmiðið hafi átt að vera að virkja fólk, þetta átti að snúast einhvern veginn um lýðræði og það væru þá fleiri bæjarfulltrúar, það þýddi einhvern veginn fleiri raddir inn í bæjarstjórnunum og annað. Ég hef hreinlega ekki séð það gerast. Ég hef verið talsmaður þess að við þurfum ekki að hafa svona marga borgarfulltrúa eða bæjarfulltrúa og í rauninni lagt frekar áherslu á það að þessir aðilar hafi svigrúm til að fjalla um öll mál sem snerta sitt sveitarfélag á dýptina.
Eins og hv. þm. Sigríður Á. Andersen kom inn á þá er auðvitað hlutverk sveitarfélaganna mjög fjölþætt. Það þýðir það að bæjarfulltrúar, þeir sem sitja í æðstu stjórnum, sem eru kosnir af íbúunum sjálfum, þurfa að hafa þekkingu og þeir þurfa að hafa svigrúm í sinni dagskrá til að kynna sér málin til hlítar. Og þetta eru engin smámál. Hér voru nefnd skipulagsmálin, það er auðvitað hægt að taka grunnskólamálin, leikskólamálin eins og voru rædd hér en þetta geta verið mál tengd heilbrigðismálum, þetta geta verið mál tengd samgöngumálum, málefnum eldri borgara og málefnum fatlaðra. Málaflokkarnir eru ansi margir og miklir og hætta á því þegar bæjarfulltrúar eru margir og hjá langflestum utan Reykjavíkur er þetta hlutastarf sem fólk er að sinna öðrum störfum meðfram því að sitja í sveitarstjórn, sem þýðir auðvitað að fólk hefur kannski takmarkað svigrúm til að sökkva sér ofan í þau málefni sem þarna eru undir. Ég held að það geti oft leitt til þess að embættismannakerfið verði enn stærra og ákvarðanir séu mjög oft teknar af embættismönnum og mögulega stimplaðar af kjörnum fulltrúum. Ég styð því þetta mál hér heils hugar sem fjallar þá í rauninni bara um Reykjavík vegna stærðar þess sveitarfélags. Ég ætla að segja það að sú sem hér stendur og hefur fylgst með pólitík í töluverðan tíma gæti ekki talið upp alla borgarfulltrúa í Reykjavík. Ég ætla að leyfa mér að efast stórkostlega um það að kjósendur í Reykjavík viti almennt hverjir sitja í borgarstjórn Reykjavíkur, vita mögulega hver er oddvitinn og kannski hver er borgarstjórinn þó að það hafi nú verið aðeins breyting á því og öðru. Ég er algerlega sannfærð um það að þessi vegferð, ef hún átti að vera einhvern veginn þannig að borgarbúar ættu að hafa frekara aðgengi að sínum fulltrúa og eitthvað slíkt, hafi algerlega misheppnast, algerlega misheppnast.
Ég minnist þess líka að rökin sem voru notuð á sínum tíma fyrir þessu væru að þetta ætti ekki að þurfa að vera meiri kostnaður, einmitt vegna þess að það væri svo ríkur kostnaður við það að kalla inn varaborgarfulltrúa. Ef ég man rétt, þá var það þáverandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, sem fjallaði einmitt um þetta með þessum hætti. Mér skildist einhvern veginn að borgarfulltrúar fengju einhver aukalaun þegar þeir voru kallaðir inn á borgarstjórnarfundi. Almennt er það auðvitað þannig að varabæjarfulltrúar fá greitt þegar þeir sitja fundi og í sumum tilfellum eru líka einhvers konar hlutföll og eins og hv. þm. Sigríður Á. Andersen kom inn á þá er fyrsti varaborgarfulltrúi í Reykjavík, held ég, með 70% af launum borgarfulltrúa og svo trappast það niður. Ég hef fullan skilning á því vegna þess að ef þú ert fyrsti varaborgarfulltrúi, ég tala nú ekki um þegar þú ert kannski mögulega eini varaborgarfulltrúinn, þá þarftu að vera mjög inni í málum þannig að ég held að það sé alveg eðlilegt að hafa einhvers konar launakjör fyrir slíkt. En ég ætla að leyfa mér að fullyrða að þessi vegferð, að vera með svona mikinn fjölda af borgarfulltrúum sem eru allir í fullu starfi, hafi ekki skilað sér í betri rekstri í Reykjavíkurborg. Ég held að ég þurfi í rauninni ekki að færa nein rök fyrir því í máli mínu, ég held að það blasi við að rekstur Reykjavíkurborgar er þaðan af síður betri núna eftir að borgarfulltrúum fjölgaði. Ég get heldur ekki séð að Reykjavíkurborg hafi ráðið eitthvað betur við þau verkefni sem þau hafa verið að ráðast í með þessum fjölda borgarfulltrúa. Ég held að það sjái líka hver maður.
Virðulegur forseti. Mig langaði líka aðeins að fá að skjóta hérna inn í umræðuna almennt um þetta mikilvæga stjórnsýslustig sem mér finnst við gjarnan ræða allt of lítið hér í þessum sal. Ég hef mikinn hug á því að við getum einhvern veginn talað af meiri virðingu um mikilvægi sveitarstjórnarstigsins sem veitir nærþjónustu til íbúanna vegna þess að nú boðar hæstv. ráðherra málaflokksins frumvarp þar sem á að þvinga sveitarfélög til sameiningar. Sú sem hér stendur hefur alltaf stutt sameiningar sveitarfélaga og tel reyndar mjög mikilvægt að það sé gerð gangskör að því. Þetta kom til umræðu á nýlegri fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna þar sem hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson var að fara yfir þessi mál. Þar var líka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem skaut inn í þá umræðu að ef það ætti að ná fram raunverulegri hagræðingu þá ætti kannski að skoða stærri sveitarfélögin. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú að á sínum tíma þegar ég gaf mér góðan tíma í að skoða þessa hluti, og ég var nú að reyna hér áðan í tölvunni að yfirfara það, að ef ég skil Árbók sveitarfélaganna rétt, sem er samantekt á ársreikningum sveitarfélaganna, þá er til að mynda langstærsta sveitarfélag okkar ekki betur rekið, alls ekki betur rekið en önnur sveitarfélög sem eru eitthvað minni. Kostnaðurinn, hvort sem það eru leikskólamál, heilbrigðismál eða aðrir málaflokkar, er ekkert endilega miklu lægri á íbúa í stóru sveitarfélögunum heldur en í minni sveitarfélögunum. Þegar þú kemur í mun minni sveitarfélög þá skiptir það auðvitað máli, en stærsta málið sem hefur alltaf verið nefnt í þessu er t.d. borgarstjóri eða bæjarstjórar, fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og slíkur stjórnsýslukostnaður, en hann er ekki lægri á hvern íbúa í Reykjavík en í öðrum stórum sveitarfélögum. Mér finnst bara svo mikilvægt, herra forseti, að þetta sé haft í huga í allri umræðu um sveitarstjórnarstigið sem mér finnst, og ítreka það, að við eigum að tala af mikilli virðingu um það og við eigum að tryggja miklu betri og öflugri samskipti milli löggjafans og sveitarstjórnarstigsins þar sem það er einmitt fólkið, kjörnu fulltrúarnir sem eiga svo að útfæra þau lög sem hér eru samin. Því miður er það ítrekað þannig að hér er hlustað allt of lítið á sveitarstjórnarstigið. Ég get bara nefnt mjög nýlegt dæmi frá síðasta sumri þar sem ég las hér ítrekað upp umsagnir frá kjörnum fulltrúum vítt og breitt um landið á sveitarstjórnarstiginu í umræðu um veiðigjöldin þar sem lítið sem ekkert var hlustað á þau sjónarmið.
Virðulegur forseti. Ég ítreka stuðning minn við þetta mál. Ég myndi líka leggja til að hv. umhverfis- og samgöngunefnd myndi velta fyrir sér öðrum fjöldamörkum sem eru í þessari grein laganna. Ég er ekki sannfærð um það að um leið og sveitarfélag er orðið stærra en 10.000 íbúar sé nauðsynlegt að það séu 11 bæjarfulltrúar eins og er til að mynda staðan í mínu sveitarfélagi, Mosfellsbæ. Ég sé ekki ástæðu til þess að svo sé, heldur miklu frekar að sveitarstjórnarfulltrúar gætu verið færri en þá fengið sæmilegar greiðslur fyrir að sinna þessum störfum sínum og þannig greiðslur sem gæfu í auknum mæli tækifæri til að sinna því starfi mikið á dýptina.