157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

sveitarstjórnarlög.

81. mál
[15:27]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka fyrir ágæta umræðu sem hefur spunnist hér í þingsal um þetta frumvarp mitt sem ég mælti fyrir. Ég fagna þeim stuðningi sem ég heyri frá þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið til máls. Ég vil hins vegar í lokin árétta að þetta mál talar svo sannarlega inn í samtímann. Ég tel að það væri þjóðráð fyrir Alþingi að afgreiða þetta mál. Í ljósi þess að sveitarstjórnarkosningar verða næsta vor þá held ég að það sé tækifæri núna til að breyta sveitarstjórnarlögum eins og þetta frumvarp kveður á um. Ég hvet hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að hafa það í huga við þinglega meðferð málsins þegar málið kemur þangað inn. Hér hefur tekið til máls hv. þm. Jens Garðar Helgason sem situr í þeirri nefnd og ég hvet nefndarmenn alla til að hafa það í huga.

Ég vil líka vegna orða hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur nefna það að ég tæki því að sjálfsögðu fagnandi ef menn hafa áhuga á að leggja fram breytingartillögu við málið þannig að þessi breyting sem frumvarpið felur í sér nái til fleiri sveitarfélaga. Ég tek undir það sem hún sagði í sinni ræðu; það er auðvitað fráleitt að stærri sveitarfélög, og hún nefndi sitt sveitarfélag, Mosfellsbæ, í þessu sambandi, hafi ekki svigrúm til að hafa færri en ellefu bæjarfulltrúa. Það er gólf sem sett er í lögunum í tengslum við sveitarfélög af þeirri stærð. Ég myndi bara fagna því hafi menn áhuga á því að koma með breytingartillögu að þessu leyti.

Að lokum vil ég hins vegar ítreka það og vænti þess að hv. þingmenn axli ábyrgð í þessu máli í ljósi sveitarstjórnarkosninga sem verða næsta vor. Nái þetta frumvarp fram að ganga þá myndi það ekki eiga við næstu borgarstjórn en það myndi gefa næstu borgarstjórn svigrúm til að taka þessa ákvörðun um að fækka, kjósi borgarstjórn hin nýja að gera það.