óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans við ræðu hér áðan og get tekið undir hvert orð. Ég get ekki annað sagt en að þetta sé áhugaverð staða í störfum mínum fyrir verkalýðshreyfinguna frá árinu 2009, sérstaklega í ljósi þess að í gær voru 17 ár frá bankahruninu. Síðan hefur verið nánast stanslaust barátta fyrir því að minnka vægi, afnema eða banna verðtryggingu til þess að ná meiri stöðugleika í bæði vaxtastigið hér og sömuleiðis líka varðandi peningastefnu Seðlabankans. Við höfum m.a. gert um það kjarasamninga 2019 og síðan aftur síðar, bæði með skömmum og síðan langtímakjarasamningi um skilgreind og örugg skref í að minnka vægi verðtryggingar svo að hún myndi þar af leiðandi í raun óvirkjast.
Því kemur það mér svolítið á óvart að hafa gengið í gegnum þessa baráttu hinum megin borðsins og upplifa efndir ríkisstjórnar sem hv. þingmaður sat í, þá hæstv. ráðherra — vanefndir á vanefndir ofan um að gera eitthvað í þessum málum. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Er þessi viðhorfsbreyting til staðar nú þegar eða gekk illa að uppfylla þessi skilyrði með þeim samstarfsflokkum sem voru á sínum tíma með honum í ríkisstjórn?