157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.

77. mál
[15:48]
Horfa

Flm. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurningarnar. Ég veit að hv. þingmaður deilir þeirri skoðun minni að það sé mikilvægt — og flokkur hans kynnti slíkar hugmyndir í aðdraganda kosninga og þess vegna hlýtur sá flokkur, verandi í ríkisstjórn núna að berjast fyrir því að þetta kerfi geti komist á. Hann getur varla verið sáttur við svör fjármálaráðherra sem hafði engan áhuga á að gera meira með skýrsluna. Vanefndir á vanefndir ofan vil ég nú bara ekki kannast við. Þegar við gerðum lífskjarasamningana man hv. þingmaður það líka að á þeim tíma náðum við í langan tíma bara býsna góðum stöðugleika með lágum vöxtum og vextirnir fóru niður m.a. vegna þess sem ríkisstjórnin gerði í ríkisfjármálum.

Þetta verkefni, að koma á þessu fyrirkomulagi húsnæðislána, er eitthvað sem er búið að blunda í mér mjög lengi. Þegar ég kom inn í fjármálaráðuneytið var þetta fyrsta verkefnið sem ég setti af stað. Það var ekki í gangi í fjármálaráðuneytinu, það er alveg rétt. Það var Framsóknarmaður í fyrsta skipti í 47 ár í fjármálaráðuneytinu þegar ég kom þar inn og þetta var verkefnið sem ég setti í gang. Það kemur í ljós, eins og ég nefndi, að öll önnur lönd í kringum okkur gera þetta með mismunandi hætti. Þegar við fórum síðan, eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar, að bera saman hlutfall húsnæðiskostnaðar hjá íslenskum heimilum þá var hann 22,3% árið 2023 samkvæmt gögnum Eurostat. Í samanburði við önnur lönd var þetta hlutfall um þriðjungi hærra í Finnlandi og Danmörku þar sem það var nálægt 30%. Þótt vextirnir væru lægri var húsnæðiskostnaður þeirra bara miklu hærri. Það sama gilti um Írland og Frakkland þar sem hlutfallið var yfir 26%. Þannig að við þurfum að taka þessa umræðu almennilega. Þessi skýrsla bendir á að það er hægt að gera betur á þessu sviði, á sviði fasteignalána, með því að koma á fyrirkomulagi þar sem hægt er að taka löng, óverðtryggð lán með föstum vöxtum og þar með taka kannski smátt og smátt stærsta skrefið til að gera út af við verðtrygginguna á Íslandi. (Forseti hringir.) Ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður vilji verða okkur samferða í þeirri vegferð.