óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ítreka að ég er sammála því að hægt sé að ná betri og meiri árangri varðandi fasteignalán á Íslandi og ná þeim markmiðum sem hv. þingmaður lýsir. Ég bendi líka á að á vettvangi Alþýðusambandsins var gerð heilmikil úttekt og skýrsla um danska húsnæðislánakerfið árið 2013 sem var m.a. hluti vinnu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála á sama ári. Þessi vinna var notuð m.a. í aðdraganda kjarasamninganna 2015 þar sem samið var um almenna íbúðakerfið, það frábæra framfaramál.
Þetta hefur ekki hlotið mikinn pólitískan hljómgrunn hingað til og ég, án þess að vera eitthvað sérstaklega gagnrýninn á þá ríkisstjórn, ætla að hrósa hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu vegna þess að ég er honum sammála. Ég held að þetta sé hægt. Það hafa, eins og ég segi, verið gerðar mjög ítarlegar úttektir af Alþýðusambandinu, ekki bara úttekt á t.d. danska húsnæðislánakerfinu, sem er mörgum þjóðum til fyrirmyndar, heldur fór líka fram útfærsluvinna, mjög ítarleg, hvaða lögum þarf að breyta o.s.frv. Slíkt kerfi býr til þennan sveigjanleika og fyrirsjáanleika sem hv. þingmaður er að kalla eftir. Að sama skapi hlýt ég að spyrja eftir allan þennan tíma þar sem við höfum barist fyrir breytingum á húsnæðislánakerfinu, t.d. á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar, hvað stóð í vegi fyrir því fram að þeim tíma sem hv. þingmaður kemur inn í fjármálaráðuneytið að hægt væri að fara í slíka vinnu, af því að ég tel að Framsóknarflokkurinn (Forseti hringir.) hafi sýnt þessu áhuga frekar en aðrir sem voru með honum í ríkisstjórn.