framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Á síðasta löggjafarþingi lagði ég fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, þar sem lagðar voru til breytingar á núgildandi lögum í nokkrum liðum. Ekki náðist að afgreiða frumvarpið fyrir þinglok og er það nú endurflutt. Frumvarpið er að mestu leyti óbreytt en þó hefur verið brugðist við tillögum um breytingar sem fram komu í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar á síðasta löggjafarþingi. Með þessu frumvarpi er ætlunin að gera róttækar breytingar á löggjöf framhaldsskólastigsins. Markmið frumvarpsins er að aðlaga ákvæði laga um framhaldsskóla að breytingum sem hafa orðið á umhverfi framhaldsskóla og skýra álitaefni sem hafa komið upp í framkvæmd frá því að lögin öðluðust gildi.
Virðulegur forseti. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um framhaldsskóla í nokkrum liðum. Meginefni frumvarpsins má skipta í eftirfarandi þætti:
Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar sem eiga að skerpa á lagaumhverfi um framhaldsskóla eftir því hver rekstraraðilinn er en ekki gilda sömu reglur um opinbera framhaldsskóla og aðra skóla á framhaldsskólastigi sem eru reknir af einkaaðilum sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Um er að ræða ákvæði um skólaráð, samstarf framhaldsskóla um rekstur og ákvæði um námsorlof. Þá er lögð til breyting sem lýtur að viðurkenningu framhaldsskóla til kennslu á framhaldsskólastigi þar sem lögð er áhersla á að skýra heimildir ráðherra til að veita bráðabirgðaviðurkenningu til kennslu á meðan umsókn er til meðferðar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Í öðru lagi felur frumvarpið í sér nýmæli um heimild framhaldsskóla til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þótt framhaldsskólar hafi ýmsar heimildir til samstarfs í gildandi lögum er lagt til að lögfesta skýrari umgjörð um slíkt samstarf. Þar er m.a. litið til þess að framhaldsskólar geri sérstaka samninga um samstarf.
Í þriðja lagi felur frumvarpið í sér ákveðnar breytingar á fyrirkomulagi þess ferils þegar framhaldsskólar setja sér námsbrautarlýsingar. Ekki verða breytingar á því meginfyrirkomulagi að framhaldsskólar vinni námsbrautarlýsingar. Breytingarnar lúta að ýmsum þáttum í viðurkenningarferli námsbrautarlýsinga þar sem horfið verður frá því að ráðherra birti allar námsbrautarlýsingar í Stjórnartíðindum og að þær verði hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Verði frumvarpið að lögum munu námsbrautarlýsingar vera viðurkenndar með opinberri birtingu, t.d. á sérstöku vefsvæði ráðuneytisins. Áfram er gert ráð fyrir því að ráðherra geti sett viðmiðunarnámsbrautir sem framhaldsskólar geta notað og slíkar brautir verði hluti aðalnámskrár framhaldsskólanna. Í þessu felst breytt verklag en ekki verður dregið úr kröfum til framhaldsskóla um gæði náms og námsbrautarlýsinga. Aðkoma ráðuneytisins að námsbrautarlýsingum verður áfram tryggð en breytingin er liður í því að auka skilvirkni í framkvæmd.
Í fjórða lagi er í frumvarpinu fjallað um breytingar á ákvæði laga um vinnustaðanám. Árið 2021 var sett ný reglugerð um vinnustaðanám sem markaði töluverðar breytingar á umgjörð vinnustaðanáms þar sem aukin áhersla var t.d. lögð á réttindi nemenda í vinnustaðanámi. Við framkvæmd þessarar reglugerðar hafa komið í ljós ýmis atriði sem rétt er að tekið sé á í löggjöf. Í frumvarpinu er til dæmis skýrð ábyrgð framhaldsskóla á gerð vinnustaðanámssamninga. Breytingin er í samræmi við áherslur reglugerðar um vinnustaðanám og er m.a. til þess fallin að auka rétt og öryggi nemenda um eðlilega námsframvindu. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til ákveðnar breytingar á skipulagi skrár yfir aðila sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms en samkvæmt frumvarpinu verður það verkefni ráðuneytisins að hafa yfirsýn yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til að taka nema í vinnustaðanám. Í frumvarpinu er einnig fjallað um námsmat í vinnustaðanámi þar sem áhersla er lögð á að samræma reglur sem gilda um námsmat í framhaldsskólum og styrkja rétt nemenda til skýringa og úrlausnar ágreinings vegna mats á hæfni í vinnustaðanámi.
Í fimmta lagi eru lagðar til breytingar á reglum um innritun í framhaldsskóla. Í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi ásamt öðru er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðuð og afstaða tekin til þess að heimilt sé að líta til fleiri sjónarmiða en námsárangurs nemenda við innritun í framhaldsskóla. Í frumvarpinu er lagt til að ákveðinn rammi verði settur utan um þau sjónarmið sem heimilt er að líta til við ákvörðun um innritun sem tengist annars vegar nemendunum sjálfum og hins vegar skólasamfélaginu. Þá er áfram gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð um innritun í framhaldsskóla þar sem þessi sjónarmið eru útfærð nánar.
Í sjötta lagi eru í frumvarpinu lagðar til ákveðnar breytingar á ákvæði laga um ábyrgð nemenda í framhaldsskóla. Orðalag gildandi ákvæðis hefur reynst erfitt í framkvæmd og hafa nýleg mál vegna alvarlegra brota nemenda gagnvart öðrum nemendum varpað ljósi á mikilvægi þess að ákvæðið sé endurskoðað frá grunni. Í frumvarpinu er fjallað um breytingar sem miða að því að skýra úrræði og málsmeðferð skóla vegna brota nemenda á skyldum sínum þar sem áhersla er lögð á lausnamiðaða nálgun út frá stuðningsþörfum nemenda ef hegðun, skólasókn eða námsárangur er ófullnægjandi áður en gripið er til meira íþyngjandi viðbragða gagnvart nemendum ef unnt er. Þá er í frumvarpinu lagt til að skilgreint verði nánar hvaða viðbragða eða viðurlaga skóli geti gripið til gagnvart nemanda. Áfram er gert ráð fyrir því að ráðherra mæli nánar fyrir um framkvæmd greinarinnar í reglugerð.
Í sjöunda og síðasta lagi er í frumvarpinu fjallað um breytingar sem miða m.a. að því að skýra stöðu samninga ríkisins við aðra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Þá er í frumvarpinu lagt til það nýmæli að ráðherra verði heimilt að framlengja samning við aðra skóla en opinbera framhaldsskóla að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Virðulegur forseti. Ég hef hér farið yfir meginatriði frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu þar sem finna má ítarlega umfjöllun um efni málsins. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til frekari umfjöllunar.