framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Þar sem er reykur er venjulega eldur. Ég ætla að halda áfram að ræða það sem hv. þm. Ingibjörg Isaksen talaði um. Við höfum fengið þessi svör áður frá hæstv. ráðherra um að þetta tengist ekki neitt, þessi tvö mál. Hér stendur í greinargerðinni með framhaldsskólafrumvarpinu, með leyfi forseta:
„Þá eru lagðar til breytingar sem miða að því að styðja við samstarf á milli framhaldsskóla. Með vísan til aukinnar umræðu um samvinnu og samrekstur ríkisstofnana þykir tilefni til að setja skýrari umgjörð um samstarf framhaldsskóla.“
Síðan er komið inn á þessar hugmyndir um svæðisskrifstofur þar sem hann talaði um námsráðgjöf, sálfræðiþjónustu, börn af erlendu bergi brotin og agamál, að svæðisskrifstofan myndi mögulega dekka það í samrekstri sem og fjárhag skólanna. Í greinargerðinni um 2. og 3. mgr. kemur svo fram, með leyfi forseta:
„Í a-lið 2. gr. frumvarpsins er lagt til að lögfest verði heimild framhaldsskóla til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Dæmi um slíka samninga er ef skólar ákveða að reka saman stoð- eða skólaþjónustu eða eiga samvinnu um námsframboð.“
Þetta er bara algjörlega kýrskýrt. Hvers vegna er ekki hægt að segja þetta bara? Þetta er algerlega kýrskýrt. Það er ekkert hægt að velkjast í vafa um það að þó að eitthvert frumvarp hafi komið fram áður þá er það margföld tilviljun að þetta rati allt saman í sama púslið. Þetta er eitthvað sem hæstv. ráðherra þarf að skýra. Það gengur ekki að hér sé komið fram með hugmyndir þar sem er talað um það sem birtist í þessu frumvarpi hér og hugmyndirnar um þessar svæðisskrifstofur rímar algerlega við það sem stendur í textanum í þessu frumvarpi, frá A til Ö. Það er fjárhagurinn, það er stoðþjónustan, það eru börn af erlendu bergi brotin. Hvað eiga svæðisskrifstofurnar að gera ef það er ekki þetta sem stendur í þessu frumvarpi um framhaldsskólana? Það verður fróðlegt að heyra það (Forseti hringir.) frá ráðherranum. Vonandi kemst það á hreint núna.