framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svar sitt en hef þó enn þá nokkrar áhyggjur af þessu, að hagsmunir einstakra nemenda verði fyrir borð bornir sökum þess að verið sé að líta til þátta er varða heildarhagsmuni skólasamfélagsins, hvernig svo sem þeir eru skýrðir af ráðherra og eftir atvikum í reglugerðinni í hvert skipti. En að því sögðu þá hef ég áhuga á því, fyrst ég hef hæstv. ráðherra til andsvara, að spyrja aðeins um skólafélögin. Þau eru mjög mikilvægur þáttur í starfi framhaldsskólanna, stór hluti jafnvel af skólagöngunni sjálfri. Ég staldra aðeins við þessar hugmyndir í frumvarpinu um að kennarar og starfsfólk geti gefið fyrirmæli um starfsemi þessara skólafélaga og þátttöku nemenda í starfi þeirra. Ég vek athygli á umsögn umboðsmanns barna við fyrra frumvarp. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort það hafi verið eitthvert samráð við nemendur við undirbúning þess þáttar frumvarpsins.