framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka ráðherra aftur fyrir framsögu sína í þessu máli sem er mikilvægt mál, frumvarp um breytingu á lögum um framhaldsskóla. Frumvarpið er að mörgu leyti ágætt en stórgallað um leið. Áhugavert var að heyra hugmyndir hæstv. ráðherra í Kastljóssþætti um daginn þar sem talað var um nýtt stjórnsýslustig, fimm til sex svæðisskrifstofur í kjölfarið. Það kom fram að mögulegt væri að skrifstofurnar sæju um fjármál, sálfræðinga, námsráðgjafa, börn með annað móðurmál en íslensku og agamál. Vissulega kom þetta frumvarp fram á síðasta þingi, lagt fram af öðrum ráðherra en hæstv. ráðherra sem hér situr. En þegar púslin sem vantaði inn í hugmyndavinnuna um svæðisskrifstofurnar falla einhvern veginn öll saman í þessu frumvarpi þá vakna spurningar. Hér í 2. gr. stendur, með leyfi forseta:
„Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
a. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Framhaldsskólum er heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans.“
Þetta eru akkúrat þættirnir fjármál, skólaþjónusta, börn með annað móðurmál og agamál.
Í 3. gr. segir: „Við 2. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: veita umsögn um samstarf um rekstur framhaldsskóla samkvæmt beiðni ráðherra.“
Í 5. gr. segir: „14. gr. laganna orðast svo […]
Um samstarf framhaldsskóla um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans fer skv. 4. mgr. 4. gr. …“
Þetta gerist ekki bara skýrara. Þessir þættir komu fram í áðurnefndu Kastljóssviðtali. Einhvern veginn er þetta þá tvíverknaður, að vera að vinna að einhverjum hugmyndum um svæðisskrifstofur og nýtt stjórnsýslustig ef þetta er allt að finna í frumvarpi um framhaldsskóla. Þetta er eitthvað nýtt og þetta nýja stjórnsýslustig hefur mætt mikilli andstöðu í framhaldsskólunum og allir framhaldsskólaskólastjórarnir sendu frá sér harðorða ályktun um að þetta væri ekki eitthvað sem þeim líkaði við, að koma á fót fjórum til sex svæðisskrifstofum og setja mannauðinn þangað sem hann á heima, í skólunum sjálfum. Það á að styrkja skólana í stað þess að reisa spilaborgir í þágu nýrrar stjórnsýslu- og flækjustigs.
Hér er gott að sjá hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur sem er góður sálfræðingur og þekkt fyrir það og ég veit að hún stendur með mér í því að þessi þjónusta verði ekki færð út úr skólunum í svæðisskrifstofurnar, enda hef ég átt við hana samtöl um það.
Þegar mannauður fer úr skólunum rofna tengsl mannauðsins við skólana og þau úrlausnarefni sem koma þar upp, hvort sem það eru nemenda- eða starfsmannamál eða efnahagsleg mál skólanna. Það er ekkert hægt að útvista efnahagsmálum eitthvert annað eða fjármálum skólans eða agamálum. Þetta endar allt inni í skólanum. Þetta er algjört lykilatriði. Það á sér enga stoð í raunveruleikanum að það sé hægt að útvista vandamálum skólanna til fjögurra til sex stofnana þótt einhverja dreymi um það, það sé hægt að klippa á eitthvert trosnað band og það falli bara og vandinn falli þangað. Vandann þarf að leysa á staðnum með þeim sem eiga í hlut og hafa getu til þess því að fólkið inni í skólunum þekkir einstaklingana og er langlíklegast til að ná árangri með það sem kemur upp í skólunum. Núna í kjördæmavikunni heimsóttum við framhaldsskóla þar sem við töluðum bæði við nemendur, kennara, aðra starfsmenn og skólastjórnendur og þar var allt á sömu bókina lært. Menn vildu ekki þetta nýja kerfi. Fólkið var til í það að leysa málin og þarna sá maður t.d. nemendur sem fóru til aðstoðarskólastjóra, það voru einstaklingar sem hann þekkti greinilega persónulega og átti í góðum tengslum við og var þess vegna mjög líklegur til að geta leyst úr vandanum. Ég fékk að ræða við þessa nemendur eftir á og það kom í ljós að þeim þótti vænt um þennan einstakling, þau þekktu hann og það myndi aldrei nást á einhverri svæðisskrifstofu einhverjum tugum eða hundruðum kílómetra í burtu.
Það er því einkennileg tilviljun að í frumvarpi um breytingu á lögum um framhaldsskóla skuli þessi setning um samstarf framhaldsskóla um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans koma fyrir í þremur breytingum í frumvarpinu samhliða því að hugmyndir hæstv. ráðherra um nýtt stjórnsýslustig koma fram. Þótt þetta lagafrumvarp hafi verið samið áður er auðvitað hægt að koma með aðrar hugmyndir um stjórnsýslustig í kjölfarið sem ríma við það sem áður er sagt. Það er púsl sem er hálfnað og svo halda menn bara áfram að púsla. Það liggur í hlutarins eðli. Með hugmyndinni um að framhaldsskólarnir hafi einmitt með sér samstarf um ákveðna þætti; fjármál, námsráðgjöf, agamál, sálfræðinga, kennslu barna með íslensku sem annað móðurmál, fara akkúrat saman hljóð og mynd. Þetta stemmir algjörlega. Það er engin seinkun á hljóði né mynd.
Frú forseti. Í 13. gr. frumvarpsins er lagt til að námsárangur verði ekki lengur frumforsenda innritunar í framhaldsskóla. Að taka þetta hlutlæga mat úr sambandi felur í sér afnám gagnsæis, skerðingu á jafnræði og gengisfellingu á því sem við eigum að leggja mest upp úr, sem er þekking og færni. Þegar óskilgreind huglæg atriði fá meira vægi en mælanlegur námsárangur þá hættum við að vita á hverju inntaka í framhaldsskólana byggist og jafnræðinu er hent út um gluggann. Hlutlægum mælikvörðum er slaufað og huglægir taka við. Sérkenni og sérstaða skóla er í hættu og veruleg hætta er á ferðinni um að skólarnir verði einsleitir og sérhæfing mannauðs verði minni. Ef skólarnir geta ekki sérhæft sig þá er ólíklegra að sérhæfður mannauður haldist í skólunum. Skólarnir verða einsleitari.
Frú forseti. Við vitum líka að íslenskt menntakerfi á undir högg að sækja þegar kemur að námsárangri og færni. Niðurstöður alþjóðlegra prófa hafa sýnt ítrekað að við stöndum höllum fæti þegar kemur að lestri, stærðfræði og raunvísindum. Í þeirri stöðu ættum við ekki að draga úr vægi námsárangurs, alls ekki, heldur styrkja það. Við eigum að hvetja til aukins námsárangurs og hann næst með ólíkum skólum þar sem nemendur geta valið þá sérhæfingu sem þeir vilja. Aukið sérhæft val fyrir nemendur.
Í dag eru skólar þekktir fyrir ákveðin einkenni og sérstöðu og sá mannauður sem fyllir skólana skapar þessa sérstöðu. Ef við fletjum út sérkenni framhaldsskólanna glötum við einum af mestu styrkleikum skólanna og hvati til að þróa sérhæft nám veikist og sértækur mannauður dreifist mikið. Viljum við raunverulega að allir framhaldsskólar verði svo gott sem eins?
Frú forseti. Þess vegna legg ég til að í stað 13. gr. frumvarpsins komi 32. gr. gildandi laga þar sem segir skýrt að þeir sem lokið hafa grunnskólanámi eða náð 16 ára aldri eigi rétt á námi í framhaldsskóla en jafnframt að hver framhaldsskóli beri ábyrgð á innritun og hafi heimild til að setja ákveðnar kröfur um undirbúning og námsárangur fyrir einstakar brautir. Við þurfum að gera kröfur. Þá munu nemendur gangast upp í þeim. Við eigum ekki að jafna niður á við, í lægsta samnefnarann. Það er sanngjarnt, gagnsætt og virðir jafnræði en virðir líka sjálfstæði skólanna.
Síðan er það 14. gr. frumvarpsins sem er ekki síður ástæða til að hafa áhyggjur af. Þar er verið að reyna að lögfesta ítarlegar reglur um skólareglur og skólabrag, ferla nemendur og koma þeim í einhvers konar box. Greinin felur í raun í sér skerðingu á rétti nemenda og foreldra þeirra. Hún býr til falskt öryggi í skólunum. Eins konar skriffræðilegt net sem færir ábyrgðina frá fagmönnum skólanna, fullorðnum fagmönnum skólanna, yfir á ófullburða nemendur sem langflestir eru börn. Þeir eru flestir börn í framhaldsskólunum. Eins konar sjálfvirkni sem útvistar ábyrgð fullorðinna fagmanna til barna og foreldra þeirra. Þetta er þekkt stef úr grunnskólanum sem framhaldsskólinn virðist því miður ætla að stíga ofan í og fora sig út.
Gildandi lög taka miklu betur á þessum þætti. Þar segir að skólar skuli setja sér reglur um skólabrag og viðurlög og að valdhafar skóla beri ábyrgðina en ábyrgðinni er ekki varpað yfir á börn og foreldra þeirra. Reglur eru skýrar og sanngjarnar. Kastljósið ætti að vera á fyrirbyggjandi þáttum sem tengjast skólabrag og skólamenningu. Þetta þekkir allt skólafólk. Akkúrat þessa þætti má finna í 33. gr. b í gildandi lögum. Það er ekki eðlilegt að lögfesta með nákvæmum hætti einhverjar reglur sem síðan geta komið með eitthvað annað sem er ekki að finna í reglunum og þá er hægt að nota lögin til að stýra fólki í einhverja bása. Það er ekki eðlilegt að vera með nákvæma útlistingu í lögum á einhverjum skólareglum.
Frumvarpið sem nú er til umfjöllunar þynnir þennan kafla í gildandi lögum, 33. gr. b um skólabraginn. Þegar búið er að ferla nemendur í hólf minnkar áherslan og ábyrgðin óhjákvæmilega til að sinna fyrirbyggjandi aðgerðum. Ef þú veist að þú berð ekki lokaábyrgðina er ólíklegra að þú gerir allt sem í þínu valdi stendur til að koma í veg fyrir eitthvað. Það kemur til einhver ferill og grípur þetta og sendir barnið, oft ekki orðið 18 ára, í einhvers konar hólf.
Frú forseti. Þegar við setjum lög sem snerta börn og ungmenni eigum við að gæta þess sérstaklega að lögin séu ekki íþyngjandi fyrir þau. 14. gr. frumvarpsins gerir hins vegar nákvæmlega það, hún veldur því að lögin verða íþyngjandi fyrir nemendur. Hún eykur vald starfsmanna framhaldsskólanna en dregur úr rétti og rými nemenda. Þannig getur fjöldi barna sem fellur undir einhvers konar refsiákvæði skólanna margfaldast. Þegar þú ert kominn með einhverjar reglur sem þú getur túlkað sem yfirvald í skólanum þá getur fjöldi þessara barna margfaldast án þess að raunveruleg réttindi barna styrkist á móti. Þetta er ekki til bóta fyrir neinn, hvorki nemendur, kennara né skólasamfélagið.
Frú forseti. Það er ábyrgð okkar hér á Alþingi að tryggja að menntakerfið sé bæði sanngjarnt og skilvirkt. Við eigum að setja ramma en ekki hlekki. Við eigum að tryggja jafnræði en ekki auka flækjustig. Við eigum að hvetja til námsárangurs en ekki að gera hann að aukaatriði. Með þessum greinum sem ég hef nefnt hér, 13. og 14. gr., tel ég að frumvarpið í núverandi mynd sé gallað, meingallað. Það dregur úr gagnsæi, skerðir jafnræði, skapar óþarfa skrifræði sem þjónar hvorki nemendum né skólunum sjálfum.
Að framangreindu virtu vil ég því leggja til að frumvarpið fari til allsherjar- og menntamálanefndar og nefndin velti því alvarlega fyrir sér að fella 13. gr. niður og 32. gr. í núgildandi lögum komi í staðinn og að 14. gr. falli einnig brott. En þetta er einmitt lagt til í minnihlutaáliti sem við komum með á síðasta þingi, minni hlutinn í nefndinni. Þannig tryggjum við að lögin byggist á jafnræði, gagnsæi og traustum grunni í þágu nemenda en ekki fullorðinna fagmanna. Það eru nemendur sem skipta öllu máli. Það er árangur þeirra og líðan sem skiptir máli, ekki eitthvert hagræði og einhverjir snúningar á peningum, og að íslenskir framhaldsskólar geti áfram sinnt sínu hlutverki, að mennta, efla og hvetja unga fólkið okkar til dáða, að skólarnir haldi sérkennum og sérstöðu sinni og að námsárangur verði í forgrunni. Ekki veitir af.