framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir andsvar sitt þó að það hafi ekki kannski beint falist spurning í því. En það hefur alveg komið fram í máli hæstv. ráðherra að svæðisskrifstofurnar verða náttúrlega að þjóna einhverju hlutverki og þá er það þessi mannauður sem var talað um að væri í þeim. Ég veit að hv. þingmaður og ég erum sammála um að mannauð í skólunum þurfi að styrkja. Það er, held ég, léttir fyrir alla þá framhaldsskólakennara og -stjórnendur sem hlusta á þessa umræðu að heyra þessi orð frá hv. þingmanni að þetta verði ekki í þessum svæðisskrifstofum heldur verði stoðþjónustan í skólunum. Það er bara jákvætt og gott að heyra það því að alveg eins og ég, þá veit hv. þingmaður að þessir starfsmenn virka langbest á vettvangi en ekki í tuga eða hundruð kílómetra fjarlægð og þá gætum við alveg eins notað Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í það hlutverk og ekki sett eitt millilag af einhvers konar stjórnendum inn í staðinn.
Það er síðan spurning sem mig langar að spyrja hv. þingmann að, því að í frumvarpinu kemur fram að námsárangur eigi ekki að vera í forgrunni endilega, það megi nota annað: Hvað með nemendur sem eru að berjast við að komast inn í skólana, eru nr. 151 og upp í 160 en það komast bara 150 nemendur inn, en það eru aðrir nemendur sem komast inn í skólann á einhverjum öðrum grundvelli en á grundvelli námsárangurs? Er það sanngjarnt gagnvart þeim nemendum sem eru að berjast við að komast inn í skólana? Ég væri síðan til í að fá eina spurningu frá hv. þingmanni.