framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka enn og aftur hæstv. ráðherra fyrir þátttöku í þessum umræðum hér í þingsal. Það skiptir nefnilega máli að geta átt í milliliðalausum samskiptum um mál sem skipta máli og þar erum við ráðherrann sammála. Aftur leitar umræðan náttúrlega í þessi áform ráðherra um svæðisskrifstofur. Ég átta mig ekki fyllilega á því og það væri fróðlegt að heyra ráðherrann greina frá því hverju svæðisskrifstofurnar eiga að bæta við það sem 2. gr. frumvarpsins mælir fyrir um, þ.e. þá heimild framhaldsskólanna til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólanna o.s.frv. Hverju ættu svæðisskrifstofurnar að bæta við þetta? Ég skil tilkynningu ráðherrans að munurinn sé einfaldlega í því að þarna sé forræðið tekið frá framhaldsskólunum.
Aftur varðandi innritunina sjálfa þá er þetta mjög viðkvæmt atriði, bæði fyrir nemendurna sjálfa og auðvitað samfélagið sjálft að einhverju leyti. En það sem ég staldra þarna við er — gott og vel, hæstv. ráðherra segir að það kunni að vera skynsamlegt að líta til fleiri þátta, en ekki eins og þegar ég innritaðist í framhaldsskóla. Þá var það stærðfræði, danska, enska og íslenska sem réðu mínum örlögum. En (Forseti hringir.) í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að það geti verið aðrir hagsmunir, sem sagt skólasamfélagið, sem hafa ekki með nemandann að gera.